Wednesday, October 7, 2009

Samstarf um starfhæfa bæjarstjórn Álftaness

Þrír bæjarfulltrúar D - lista og Margrét Jónsdóttir óháður bæjarfulltrúi undirrituðu samkomulag þann 27. september sl. um myndun nýs meirihluta bæjarstjórnar Álftaness, sem byggir á ,,samkomulagi um starfhæfa" bæjarstjórn.

Höfuð markmið samkomulagsins er fjárhagslegs eðlis, að skilgreina vanda rekstrar bæjarsjóðs Álftaness og finna leiðir, sem færar eru inn á farsælli brautir Álftnesingum til heilla.

Nú er unnið að átta mánaða uppgjöri ársins og verður það lagt fram á fundi bæjarráðs fljótlega.

Frá því Sigurður Magnússon þá bæjarstjóri, tilkynnti oddvita D - lista og formanni Sjálfstæðisfélagsins á fundi seint á sunnudagskvöldi 26. júlí sl, að meirihluti Á - lista væri sprunginn vegna endurkomu Kristjáns Sveinbjörnssonar í bæjarstjórn, þá er því miður liðinn langur tími, þar sem Sigurður sat lengst af sem bæjarstjóri án umboðs.

Samkomulagið frá 27. september sl. er afrakstur margra funda og mikillar yfirlegu vikna þar á undan. Hafa aðilar samkomulagsins heitið fullri samstöðu, heilindum og trúnaði sín á milli, við verkefnið sem er framundan.

Ábyrgð okkar sem að samkomulaginu stöndum er mikil og verkefni okkar liggur ljóst fyrir, Álftnesingar munu sjá skýr merki þess á næstu vikum að með nýjum vinnubrögðum verður tekið með raunhæfum hætti á þeim vanda sem blasir við í rekstri bæjarsjóðs.

Guðmundur