Þar sem ég hef allt frá hausti 2006 gagnrýnt framferði, áætlanir og ákvarðanir fulltrúa Á – lista, undir forystu Sigurðar Magnússonar þá bæjarstjóra, þá finnst mér rétt að benda hér á niðurstöðu skýrslu sem unnin var af Grant Thornton endurskoðun fyrir bæjarstjórn Álftaness á haustdögum 2006, máli mínu til stuðnings.
Skýrsla þessi var unnin skv. samþykkt bæjarstjórnar að tillögu fulltrúa Á – lista. Aðalmál tillögunnar að mati þáverandi bæjarstjóra, var að gera úttekt á stöðu fjármála fyrstu sex mánaða ársins 2006, til þess að sýna fram á lélega stjórnsýslu undir forystu fulltrúa D – lista, sem eðli máls skv. höfðu ekkert með rekstur bæjarfélagsins að gera eftir 1. júní 2006, sbr. niðurstöðu kosninganna í maí 2006.
Rekstur bæjarsjóðs árið 2006 byggði auðvitað á fjárhagsáætlun ársins, sem samþykkt var í desember 2005.
Rétt er að benda á að fjárhagsáætlun árins 2006 gerði ráð fyrir rekstri allt árið, en ekki einungis fyrstu sex mánaðanna. Þegar síðan það gerist að fulltrúar Á – lista að frumkvæði þáverandi bæjarstjóra taka fjárhagsáætlun ársins úr sambandi og öll áform, sem samþykkt höfðu verið til hagsbóta fyrir Álftensinga voru látin lönd og leið, að eitthvað hlaut að láta undan. Þarna strax var ollið gífurlegu tjóni, sem síðan hlóðst upp með gengdarlausum og arfavitlausum ákvörðunum, sem smátt og smátt leiddu til þess að bæjarsjóður komst í þrot.
Ef eftirlitskerfi með fjármálum sveitarfélaga hefði virkað á árinu 2007, þá hefði ársreikningur 2006 og fjárhagsáætlun 2007 átt að koma til alvarlegrar skoðunar í ráðuneyti sveityarstjórnarmála. Svo varð ekki því miður - ,,það voru allir svo happý 2007."
Til þess að taka dæmi um innistæðulausar ákvarðanir frá sumri 2006, þá er rétt að nefna ákvörðun um að lækka leikskólagjöld um 33% og hefja mánaðarlegar greiðslur til foreldra ungra barna kr. 40.000.- á mánuði. Þessar tvær ákvarðanir eru meðal þeirra, sem leiddu okkur á hrun brautina strax saumarið 2006. Þessar tvær ákvarðanir voru göfugar, en með öllu innistæðulausar.
Strax sumarið 2006 var hafist handa við að eyða almannafé á bæði borð á þeim grundvelli að tækjur myndu flæða í bæjarsjóð á árunum 2007 og 2008.
ÞÆR TEKJUR KOMU ALDREI Í BÆJARSJÓÐ.
Ég tel að stjórnsýsluúttekt sú sem nú fer fram í Samgönguráðuneytinu á öllum fjárhagslega tengdum ákvörðunum og skuldbindingum bæjarstjórnar öll árin, 2005, 2006, 2007, 2008 og 2009, muni sýna að hér var kolvitlaust gefið allt frá sumri 2006. Úttekt Þessi er gerð skv. samningi bæjarstjórnar við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga dags. 17. desember 2009.
Ekki er útilokað að í þessari úttekt ráðuneytisins komi fram saknæm atriði, sem varða almannaheill á Álftanesi.
Þessi athyglisverði kafli er úr skýrslu Grant Thornton endurskoðunar frá í nóvember 2006:
"Í dag hafa hins vegar ytri skilyrði versnað, eins og svo glögglega
kemur fram í árshlutareikningi sveitarfélagsins, en þar sést að kostnaðarliðir hækka töluvert umfram áætlanir en tekjur ekki að sama skapi. Þá verða tekjur vegna lóðasölu og gatnagerðar ekki innleystar ekki fyrr en á næstu árum vegna frestunar á framkvæmdum. Vextir á lánamörkuðum erlendis og hérlendis hafa farið hækkandi, gengisþróun verið óhagstæð og verðbólga komin vel yfir sett verðbólgumarkmið Seðlabankans.
Bregðast þarf við hallarekstri strax.
Með þetta í huga og þegar horft er á afkomutölur fyrstu fimm mánuði ársins 2006 er það skoðun okkar að leita þurfi allra leiða til að bregðast við rekstrarhalla og skuldasöfnun þannig að sveitarfélagið geti staðið við skuldbindingar sínar þegar til framtíðar er litið."
Svo mörg voru þau orð endurskoðendanna.
Hvað var svo gert með þessa viðvörun = ALLS EKKI NEITT.
Hefði fjárhagsáætlun sú sem samþykkt var í desember 2005 ekki verið svona kyrfilega tekin úr sambandi í júni 2006 og ef einhver minnsti snefill málamiðlunar milli algerrar eyðileggingar fulltrúa Á – lista undir dæmalausri forystu þáverandi bæjarstjóra og raunhæfra áætlana fulltrúa D – lista frá í desember 2005 við afar erfiðar aðstæður, þá værum við ekki í þeim sporum sem við erum nú um stundir.
Nú reynir á hvernig hægt verður að sinna heildarhagsmunum Álftnesinga svo að vel verði tryggt að árás fulltrúa Á – lista á almannafé okkar íbúanna bæjarsjóðinn allt frá því í júni 2006 geti aldrei aftur orðið skotspónn misvitra spekúlanta með óspennandi fortíð, sem láta sér ekki annt um neitt annað en eigin velferð á grundvelli lýðskrums, lyga og alvarlegrar fyrringar.
Engin fullvissa er fyrir því á hvern hátt okkur tekst að vinna úr þessum geysimikla vanda, sem blasir við. En Íslendingar eru þekktir fyrir að láta sér ekki allt fyrir brjóstið brenna og við munum sjá fram á betri tíð, við eigum það skilið eftir allt sukkið og bullið, sem yfir okkur hefur gengið á landsvísu og einnig undir nefum okkar í eigin heimabyggð.
Bestu óskir um gleðilegt og farsælt nýtt ár,
Guðmundur
Thursday, December 31, 2009
Thursday, December 24, 2009
Jólakveðja
Það hefur margt á dagana drifið síðan um mánaðarmótin september október sl. Þá var myndaður nýr meirihluti bæjarstjórnar, sem kom að verki af fullri einurð og ábyrgð. Lög kveða á um hvernig sveitarstjórn skuli bera sig að þegar í fjárþröng er komið. En svo hart hefur verið keyrt á óraunverulegum markmiðum og margar innistæðulausar ákvarðanir verið teknar. Fulltrúar D - lista hafa ítrekað varað við óraunhæfum áætlunum fulltrúa Á - lista. Það er hart að þurfa upplifa slíka atburðarrás, sem þessa hér á Álftanesi.
Því hefur verið haldið fram ítrekað að kreppa sú sem skall á í byrjun október 2008 sé orsakavaldurinn að gjaldþurrð bæjarsjóðs. Því fer auðvitað víðs fjarri, það var löngu ljóst að hér hefur verið vitlaust gefið allt frá sumri 2006. Með samanburði ársreikninga 2005 til 2008 sést svo ekki verður um villst, hvernig ekki á að gera hlutina.
Þessa dagana er raunverulega látið á það reyna hvort gerlegt sé að vinna okkur út úr þessum mikla vanda, sem búið er að setja bæjarsjóð í. Gerður hefur verið samningur við eftirlitnefnd með fjármálum sveitarfélaga, sem veitir okkur visst svigrúm til aðgerða á eigin forsendum. Meðal þess sem semja þurfti um var hvert álag á útsvar yrði og hve há álagning yrði á fasteignaskatt. Með góðum rökum var komist hjá því að hér yrðu samþykktar hæstu álögur, sem heimilar eru skv. lögum. Auðvitað er þegar byrjað að skrumskæla tölur úr þessu samkomulagi og því haldið fram að fasteignagjöld hækki um 40%! Svo er alls ekki. Fasteignaskattsálagning verður 0,4 af fasteignamati í stað 0,28. Fasteignaskattur er einn hluti fasteignagjalda, aðrir þrír gjaldstofnar koma til. Að teknu tilliti til þess hver gjöld verða vegna sorpgjalds, fráveitu og vatnsgjalds, þá verður hækkun fasteignagjalda á Álftanesi 13 til 15%, en í örfáum undantekningartilfellum 25%. Rétt er að vekja aðhygli á að Á - listi ákvað að fasteignagjöld hækkuðu 1. janúar 2007 um 32%!
Því miður þurfa Álftnesingar að bera auknar byrðar og þykir mörgum nóg um, þar sem ríkið gengur fram af hörku og hækkar álögur á íbúa landsins, með hækkun skatta, vöruverðs og verðtryggingar lána.
Vonandi verða þessar sértæku álögur á Álftnesinga einungis til eins árs. Það er mikilvæg vinna, sem fer nú í gang og varðar marga samverkandi þætti til hagsbóta fyrir Álftnesinga. Í janúar verður haldinn íbúafundur, þar sem skýrt verður í hvar stefni og hvernig hafi til tekist, frá því samningur var gerður við eftirlitsnefndina.
Ég hef ekki um skeið skrifað á bloggið pistla mína og var það að vandlega athuguðu máli. Ég fengið nokkrar fyrirspurnir vegna þessa og því að er til svar að tímabilið frá lokum september hefur verið mjög viðkvæmt og bæjarfulltrúar meirihluta bæjarstjórnar sammælst um að vinna við þessar erfiðu aðstæður þurfi háttvísi og trúnað.
Nokkrar blaðagreinar hafa verið birtar undanfarnar vikur eftir þau sem mesta ábyrgð bera á þróun mála á Álftanesi. Gegn um sneitt lýsa þau orð þessari dæmalausu fyrringu, sem við blasir öllum sem skilja vilja það ófremdarástand, sem búið er að koma okkur Álftnesingum í á kjörtímabilinu. Þetta málæði þessara aðila er dæmalaust yfirklór. Vita þau ekki enn hvaða tjóni þau hafa valdið?
Því miður þurfa Álftnesingar nú að taka á honum stóra sínum af æðruleysi, við fordæmalausar aðstæður bæði á landsvísu og hér heima fyrir.
Nú gengur í garð jólahátíðin, með allri þeirri gleði sem fylgir. Höfum í heiðri gömlu góðu gildin, með samheldni fjölskyldna og samhug nágranna, kunningja og vina.
Ágætu Álftnesingar, gleðileg jól.

Subscribe to:
Posts (Atom)