Monday, January 25, 2010

Nýju fötin keisarans.

Á stuttum fundi bæjarráðs í dag hafði fulltrúi Á - lista ekki áhuga á að ræða dagskrárliðina, sem vörðuðu fjárhagsáætlun, að neinu marki. Aðalmálið var að skubba fundinum af, svo hægt væri að senda mbl.is tilkynningu um að fulltrúi Á - lista hefði lagt fram tvær tillögur á fundinum. Nerkilegt nokk.

Tillögur þessar eru með nokkrum ólíkindum, einkum í ljósi þess að á fundi bæjarstjórnar sl. fimmtudag var kynnt skýrsla bæjarstjórnar til eftirlitsnefndarinnar. Skýrslan verður á dagskrá fundar bæjarstjórna á morgun og fær þá formlega afgreiðslu.

Fyrri tillaga fulltrúa Á - lista á fundi bæjarráðs í dag er um "að gera ríkissjóði tilboð í að kaupa hlutafé Álftaness í Fasteign á fjórföldu nafnverði." Hin tillagan er um að "gera ríkissjóði tilboð um kaup á lóð fyrir menningar- og náttúrufræðisetur." Með tekjum af þessum "tilboðum" á víst að bæta eiginfjárstöðu bæjarsjóðs.

Já þetta eru réttar tilvitnanir.

Á - listinn hefur snúist 180° - muna ekki margir að fyrrverandi bæjarstjóri, sem bar upp þessar tillögur í bæjarráði fyrr í dag sagði þegar ljóst lá fyrir að leita þyrfti til eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, að um uppgjöf væri að ræða. Að hér væru engin vandamál og að allur þessi málatilbúnaður væri gerður að tilhutan fulltrúa D - lista, sem "ætluðu að sameina Álftanes Garðabæ." En þá var ljóst að bæjarsjóður var fjárvana með skuldabagga upp á yfir 5 faldar árstekjur. Þetta eru nú ekki trúverðugar tillögur af vörum fulltrúa Á - lista, þegar ljóst er að sá sem bar upp tillögurnar í bæjarráði í dag, er sá sem mesta ábyrgð ber á gjaldþroti bæjarsjóðs. Þessi fyrrum bæjarstjóri kýs að afhjúpa sig með þessum einkennilega hætti.

Einhverjum gæti dottið í hug "nýju fötin keisarans."

En sjón er sögu ríkari, þessar kostulegu tillögur eru í fundargerð bæjarráðs frá í dag á heimasíðunni alftanes.is

Guðmundur

Fjárhagsáætlun 2010

Einkennilegur fréttaflutningur, einkum á ruv.is og mbl.is, var af lokuðum vinnufundi bæjarstjórnar á fiummtudaginn var og látið í það skína að fjárhagsáætlun ársins væri lögð fram til fyrstu umræðu á lokuðum fundi. Svo var auðvitað alls ekki.

Fundur bæjarstjórnar á fimmtudaginn var til þess að ræða skýrslu bæjarstjórnar til eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, fjárhagsáætlun 2010 og þriggja ára áætlun 20011 til 2013. En eftir að eftirlitsnefndin skilaði rannsóknarskýrslu sinni um fjármál bæjarfélagsins í desember, var gerður samningur við nefndina um tiltekna vinnu. Vinna þessi er í formi skýrslu bæjarstjórnar, sem upphaflega var samið um að lægi fyrir 20. janúar, en frestur fékkst til 27. janúar vegna umfangs málsins.

Skemmst er frá að segja að fundur bæjarstjórnar á fimmtudaginn var fór út um þúfur vegna upphlaups fyrrverandi bæjarstjóra og sleit forseti fundinum mun fyrr en ætlað hafði verið og án þess að nein efnisleg umræða af viti færi fram um boðað fundarefni.

Í dag er fundur bæjarráðs, þar sem skýrsla bæjarstjórnar ásamt fjárhagsáætlun ársins og þriggja ára áætlun er á dagskrá.

Á morgun verður fundur bæjarstjórnar, þar sem skýrslan verður til umfjöllunar og fyrri umræða um fjárhagsáætlun ársins og þriggja ára áætlun lögð fram.

Síðan er áætlað er halda fund bæjarstjórnar 4. febrúar nk. og þá fari fram síðari umræða um fjárhagsáætlun ársins.

Reyndar fer tímasetning seinni umræðu um fjárhagsáætlun eftir þeim viðbrögðum, sem skýrsla bæjarstjórnar um fjármál bæjarsjóðs fær hjá eftirlitsnefninni. Hvort bæjarstjórn fær svigrúm til þess að vinna áfram að erfiðum málum okkar Álftnesinga á grundvelli skýrslunnar án íhlutunar ráðuneytisins.

Mér þótti rétt að árétta þessi atriði, vegna þess að því hefur verið haldið fram að fyrri umræða um fjáhagsáæltun hafi farið fram "fyrir luktum" dyrum, sem er auðvitað fjarri sanni, sbr. ofangreint.

Guðmundur

Friday, January 15, 2010

Í aðdraganda þorrablótsins

Þorrablótið verður haldið laugardaginn 23. janúar nk. Að undirbúningi þess vinna orkuboltar frá Kvenfélaginu og Lionsklúbbnum. Ég veit að enn er hægt að nálgast miða á blótið.

Í Morgunblaðinu í dag er skondin tilkynning frá ,,Bæjarmálaráði Á - listans" um að þegar skuli hafinn undirbúningur að framboði Á - listans vegna sveitarstjórnakosninga í vor. Þar eru þrír einstaklingar nefndir á nafn og athygli vekur að fyrrverandi forseti bæjarstjórnar er ekki nefndur til sögunnar, enda fær hann bara að vera með, þegar hentar hverju sinni. Einnig er það athyglisvert að þessi hópur, sem telur 5 til 6 manns skuli láta sér detta í hug slíka vitleysu sem þessa. Þvílík firring. Þeir sem nefndir eru til sögunnar í tilkynningunni bera þyngsta ábyrgð bæjarfulltrúa á Álftanesi á allra mesta skandal í sögu sveitarfélaga á Íslandi og meðferð á almannafé, gjaldþroti heils bæjarfélags.

Já segja má að firringin sé alger og einkum hjá fyrrverandi bæjarstjóra, sem er jú hugmyndafræðingurinn í hrunadansi Á - listans, með augljósum erfiðum afleiðingum fyrir Álftnesinga. Að hugsa sér slíka framkvæmdastjórn á einungis um þremur árum. Raunar komu fyrstu einkenni hruns Álftaness fram strax sumarið 2006, þegar teknar voru magnaðar innistæðulausar ákvarðanir í bæjarstjórn og tengdar við kosningaloforð Á - listans! Þá var Gleðibanki Á - listans opnaður, að hætti útrásavíkinganna, sem stálu íslensku bönkunum.

Ég nefndi þorrablótið í upphafi og tel víst að með einum eða öðrum hætti sé þessi tilkynning gerð með aðdraganda þorrablótsins í huga, enda er það þekkt í gegn um árin að sveitarstjórnin hverju sinni fær tiltekinn skammt af pillum í skemmtiatriðum.

Ætla má að þessi tilkynning sé sett í Moggann til þess að magna spennuna fyrir blótið, svo mikið grín sem þessi einstaka tilkynning ber augljóslega með sér.

Athygli vekur að ekki fer mikið fyrir umfjöllun í fjölmiðlum af þátttöku í undirbúningi framboðs Sjálfstæðisfélagsins vegna sveitarstjórnarkosninganna, þar eiga þó nokkru fleiri hlut að máli en hjá Á - lista, sem rúin er trausti. Frestur til að skila framboðum í ætlað prófkjör Sjálfstæðisfélagsins rann út um síðastliðna helgi. Þar komu 12 nöfn upp úr hattinum og stefnir í spennandi prófkjör við afar erfiðar aðstæður á Álftanesi og næsta víst að ekki er kosið til heils kjörtímabils að þessu sinni.

Guðmundur

Sunday, January 10, 2010

Framboð Sjálfstæðisfélagsins í sveitarstjórnarkosningum.

Auglýsingu var dreift fyrir jól á Álftanesi með Grásteini blaði Sjálfstæðisfélagsins, þar sem auglýstur var undirbúningur að framboði Sjálfstæðisfélagsins og óskað eftir þátttöku í prófkjöri vegna þess.

Ég hef nú komið til skila til kjörnefndar vegna framboðs Sjálfstæðisfélagsins eftirfarandi erindi:

,,Undirritaður Guðmundur G. Gunnarsson kt. 010850-3399 Norðurtúni 3, gef kost á mér til framboðs fyrir Sjálfstæðisfélag Álftaness í sveitarstjórnarkosningum 29. maí 2010.
Samkvæmt samþykkt aðalfundar Sjálfstæðisfélags Álftaness, að tillögu stjórnar félagsins, var ákveðið að fram færi prófkjör til röðunar á lista félagsins 30. janúar nk.

Ég er oddviti lista félagsins og býð mig fram í fyrsta sæti á framboðslista Sjálfstæðisfélagsins í næstu sveitarstjórnarkosningum við afar erfiðar aðstæður á Álftanesi og tel að kraftar mínir og reynsla geti nýst Álftnesingum til hagsbóta í þeirri umfangsmiklu vinnu sem óhjákvæmilega er framundan.
Álftanesi 9. janúar 2010.
sign:
Guðmundur G. Gunnarsson

25 félagar í Sjálfstæðisfélagi Álftaness standa að framboðinu."

Thursday, January 7, 2010

Tveir umdeildir búa á Álftanesi

Nú hefur forseti Íslands sett þjóðfélagið á annan endann, með tilkynningu sinni um að skrifa ekki undir lög frá alþingi um Icesafe.

Hvernig stendur á því að forsætisráðherra hlerar ekki forsetann í atganginum á alþingi undanfarna mánuði vegna þessa máls, um hvað hann muni gera, þegar sama málið kemur öðru sinni á hans borð? Í ljósi þess hvernig hann afgreiddi fyrri lögin um Icesafe.

Hvernig stendur á því að forseti tilkynnir ekki forsætisráðherra fyrirfram í trúnaði um sína ákvörðun, til þess að færi hefði gefist til að undirbúa yfirveguð viðbrögð til þjóðarinnar og innlendra og erlendra fréttastofa, þannig að allavega lægi fyrir sjónarmið ríkisstjórnarinnar? Forseti hefði mátt geta sér til um að ákvörðun hans um að synja lögunum staðfestingar myndi valda nokkrum usla.

Alþingi afgreiddi Icesafe lög öðru sinni 30. desember sl.

Forseti hefur marglýst yfir því að til þess gæti komið að hann beitti þessu umdeilda ákvæði í stjórnarskránni. Voru skilaboðin ekki nógu skýr frá honum, til þess að alþingi væri ljóst að bregðast þyrfti við og skýra lög hvað þetta umdeilda atriði varðaði? Það hafa liðið um 66 ár og að því er virðist ekki verið ástæða til að breyta lögunum, hvað þetta atriði varðar.

Hvernig má það gerast að forseti gefi sér á líkum að meirihluti sé á alþingi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesafe málið? Alþingi hafnaði fyrir nokkrum dögum að slík atkvæðagreiðsla færi fram. Einnig gefur forseti sér vafasamar forsendur varðandi nafnalista Indefence hópsins. En komið er í ljós að einhverjir í þeim hópi, sem skráðu sig eða voru skráðir á þann lista, héldu að með því væri verið að mæla með því að samningi um greiðslur vegna Icesafe yrði hafnað. En svo var vissulega ekki uppi á teningnum, hvað varðaði forsendur þessa umdeilda lista.

Á Álftanesi búa nú um stundir tveir umdeildir menn.

Hinn er sá sem setti bæjarsjóðinn okkar á hliðina, á innan við þremur árum. Þar er ég að tala um frekar illa meðferð á almanna fé.

Atburðarrásin frá í júní 2006 hefur verið lyginni líkust á Álftanesi. Sá sem ber mesta ábyrgð á hruni bæjarsjóðs Álftaness, sýndi af sér dæmalausan dómgreindarskort.

Þeir sem honum fylgdu áttuðu sig því miður of seint, skaðinn var skeður.

Nú er unnið að því hörðum höndum að lágmarka skaðann, með heildarhagsmuni íbúa að leiðarljósi. Ég er bjartsýnn á að Álftnesingar sjái fram á betri tíð.

Það merkilega er hve mikil líkindi eru með óhófi og hruni íslenska kerfisins undanfarinn áratug undir skilningarvitum fulltrúa þjóðarinnar á alþingi annars vegar og svo hins vegar óhófi og hruni fjárhags Álftaness.

Á Álftanesi glímum við við eigið Icesafe. Spurning í okkar tilfelli er, hver á að borga óreiðuna?

Hér er tilvitnun í bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisfélagsins á fundi bæjarstjórnar Álftaness 28. ágúst 2006:

,,Reyndar er það svo að margar gjörðir Á lista frá kjördegi í maí sl. virðast miða að því að leggja fjárhag bæjarfélagsins í rúst á sem skemmstum tíma, svo hart er keyrt. Fulltrúar D lista frábiðja sér slík vinnubrögð sem þessi og lýsa fullri ábyrgð á hendur fulltrúum Á lista.“

Guðmundur

Thursday, December 31, 2009

Við áramót á Álftanesi.

Þar sem ég hef allt frá hausti 2006 gagnrýnt framferði, áætlanir og ákvarðanir fulltrúa Á – lista, undir forystu Sigurðar Magnússonar þá bæjarstjóra, þá finnst mér rétt að benda hér á niðurstöðu skýrslu sem unnin var af Grant Thornton endurskoðun fyrir bæjarstjórn Álftaness á haustdögum 2006, máli mínu til stuðnings.

Skýrsla þessi var unnin skv. samþykkt bæjarstjórnar að tillögu fulltrúa Á – lista. Aðalmál tillögunnar að mati þáverandi bæjarstjóra, var að gera úttekt á stöðu fjármála fyrstu sex mánaða ársins 2006, til þess að sýna fram á lélega stjórnsýslu undir forystu fulltrúa D – lista, sem eðli máls skv. höfðu ekkert með rekstur bæjarfélagsins að gera eftir 1. júní 2006, sbr. niðurstöðu kosninganna í maí 2006.

Rekstur bæjarsjóðs árið 2006 byggði auðvitað á fjárhagsáætlun ársins, sem samþykkt var í desember 2005.

Rétt er að benda á að fjárhagsáætlun árins 2006 gerði ráð fyrir rekstri allt árið, en ekki einungis fyrstu sex mánaðanna. Þegar síðan það gerist að fulltrúar Á – lista að frumkvæði þáverandi bæjarstjóra taka fjárhagsáætlun ársins úr sambandi og öll áform, sem samþykkt höfðu verið til hagsbóta fyrir Álftensinga voru látin lönd og leið, að eitthvað hlaut að láta undan. Þarna strax var ollið gífurlegu tjóni, sem síðan hlóðst upp með gengdarlausum og arfavitlausum ákvörðunum, sem smátt og smátt leiddu til þess að bæjarsjóður komst í þrot.

Ef eftirlitskerfi með fjármálum sveitarfélaga hefði virkað á árinu 2007, þá hefði ársreikningur 2006 og fjárhagsáætlun 2007 átt að koma til alvarlegrar skoðunar í ráðuneyti sveityarstjórnarmála. Svo varð ekki því miður - ,,það voru allir svo happý 2007."

Til þess að taka dæmi um innistæðulausar ákvarðanir frá sumri 2006, þá er rétt að nefna ákvörðun um að lækka leikskólagjöld um 33% og hefja mánaðarlegar greiðslur til foreldra ungra barna kr. 40.000.- á mánuði. Þessar tvær ákvarðanir eru meðal þeirra, sem leiddu okkur á hrun brautina strax saumarið 2006. Þessar tvær ákvarðanir voru göfugar, en með öllu innistæðulausar.

Strax sumarið 2006 var hafist handa við að eyða almannafé á bæði borð á þeim grundvelli að tækjur myndu flæða í bæjarsjóð á árunum 2007 og 2008.

ÞÆR TEKJUR KOMU ALDREI Í BÆJARSJÓÐ.

Ég tel að stjórnsýsluúttekt sú sem nú fer fram í Samgönguráðuneytinu á öllum fjárhagslega tengdum ákvörðunum og skuldbindingum bæjarstjórnar öll árin, 2005, 2006, 2007, 2008 og 2009, muni sýna að hér var kolvitlaust gefið allt frá sumri 2006. Úttekt Þessi er gerð skv. samningi bæjarstjórnar við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga dags. 17. desember 2009.

Ekki er útilokað að í þessari úttekt ráðuneytisins komi fram saknæm atriði, sem varða almannaheill á Álftanesi.

Þessi athyglisverði kafli er úr skýrslu Grant Thornton endurskoðunar frá í nóvember 2006:

"Í dag hafa hins vegar ytri skilyrði versnað, eins og svo glögglega
kemur fram í árshlutareikningi sveitarfélagsins, en þar sést að kostnaðarliðir hækka töluvert umfram áætlanir en tekjur ekki að sama skapi. Þá verða tekjur vegna lóðasölu og gatnagerðar ekki innleystar ekki fyrr en á næstu árum vegna frestunar á framkvæmdum. Vextir á lánamörkuðum erlendis og hérlendis hafa farið hækkandi, gengisþróun verið óhagstæð og verðbólga komin vel yfir sett verðbólgumarkmið Seðlabankans.
Bregðast þarf við hallarekstri strax.
Með þetta í huga og þegar horft er á afkomutölur fyrstu fimm mánuði ársins 2006 er það skoðun okkar að leita þurfi allra leiða til að bregðast við rekstrarhalla og skuldasöfnun þannig að sveitarfélagið geti staðið við skuldbindingar sínar þegar til framtíðar er litið."

Svo mörg voru þau orð endurskoðendanna.
Hvað var svo gert með þessa viðvörun = ALLS EKKI NEITT.

Hefði fjárhagsáætlun sú sem samþykkt var í desember 2005 ekki verið svona kyrfilega tekin úr sambandi í júni 2006 og ef einhver minnsti snefill málamiðlunar milli algerrar eyðileggingar fulltrúa Á – lista undir dæmalausri forystu þáverandi bæjarstjóra og raunhæfra áætlana fulltrúa D – lista frá í desember 2005 við afar erfiðar aðstæður, þá værum við ekki í þeim sporum sem við erum nú um stundir.

Nú reynir á hvernig hægt verður að sinna heildarhagsmunum Álftnesinga svo að vel verði tryggt að árás fulltrúa Á – lista á almannafé okkar íbúanna bæjarsjóðinn allt frá því í júni 2006 geti aldrei aftur orðið skotspónn misvitra spekúlanta með óspennandi fortíð, sem láta sér ekki annt um neitt annað en eigin velferð á grundvelli lýðskrums, lyga og alvarlegrar fyrringar.

Engin fullvissa er fyrir því á hvern hátt okkur tekst að vinna úr þessum geysimikla vanda, sem blasir við. En Íslendingar eru þekktir fyrir að láta sér ekki allt fyrir brjóstið brenna og við munum sjá fram á betri tíð, við eigum það skilið eftir allt sukkið og bullið, sem yfir okkur hefur gengið á landsvísu og einnig undir nefum okkar í eigin heimabyggð.

Bestu óskir um gleðilegt og farsælt nýtt ár,

Guðmundur

Thursday, December 24, 2009

Jólakveðja

Það hefur margt á dagana drifið síðan um mánaðarmótin september október sl. Þá var myndaður nýr meirihluti bæjarstjórnar, sem kom að verki af fullri einurð og ábyrgð. Lög kveða á um hvernig sveitarstjórn skuli bera sig að þegar í fjárþröng er komið. En svo hart hefur verið keyrt á óraunverulegum markmiðum og margar innistæðulausar ákvarðanir verið teknar. Fulltrúar D - lista hafa ítrekað varað við óraunhæfum áætlunum fulltrúa Á - lista. Það er hart að þurfa upplifa slíka atburðarrás, sem þessa hér á Álftanesi.

Því hefur verið haldið fram ítrekað að kreppa sú sem skall á í byrjun október 2008 sé orsakavaldurinn að gjaldþurrð bæjarsjóðs. Því fer auðvitað víðs fjarri, það var löngu ljóst að hér hefur verið vitlaust gefið allt frá sumri 2006. Með samanburði ársreikninga 2005 til 2008 sést svo ekki verður um villst, hvernig ekki á að gera hlutina.

Þessa dagana er raunverulega látið á það reyna hvort gerlegt sé að vinna okkur út úr þessum mikla vanda, sem búið er að setja bæjarsjóð í. Gerður hefur verið samningur við eftirlitnefnd með fjármálum sveitarfélaga, sem veitir okkur visst svigrúm til aðgerða á eigin forsendum. Meðal þess sem semja þurfti um var hvert álag á útsvar yrði og hve há álagning yrði á fasteignaskatt. Með góðum rökum var komist hjá því að hér yrðu samþykktar hæstu álögur, sem heimilar eru skv. lögum. Auðvitað er þegar byrjað að skrumskæla tölur úr þessu samkomulagi og því haldið fram að fasteignagjöld hækki um 40%! Svo er alls ekki. Fasteignaskattsálagning verður 0,4 af fasteignamati í stað 0,28. Fasteignaskattur er einn hluti fasteignagjalda, aðrir þrír gjaldstofnar koma til. Að teknu tilliti til þess hver gjöld verða vegna sorpgjalds, fráveitu og vatnsgjalds, þá verður hækkun fasteignagjalda á Álftanesi 13 til 15%, en í örfáum undantekningartilfellum 25%. Rétt er að vekja aðhygli á að Á - listi ákvað að fasteignagjöld hækkuðu 1. janúar 2007 um 32%!

Því miður þurfa Álftnesingar að bera auknar byrðar og þykir mörgum nóg um, þar sem ríkið gengur fram af hörku og hækkar álögur á íbúa landsins, með hækkun skatta, vöruverðs og verðtryggingar lána.

Vonandi verða þessar sértæku álögur á Álftnesinga einungis til eins árs. Það er mikilvæg vinna, sem fer nú í gang og varðar marga samverkandi þætti til hagsbóta fyrir Álftnesinga. Í janúar verður haldinn íbúafundur, þar sem skýrt verður í hvar stefni og hvernig hafi til tekist, frá því samningur var gerður við eftirlitsnefndina.

Ég hef ekki um skeið skrifað á bloggið pistla mína og var það að vandlega athuguðu máli. Ég fengið nokkrar fyrirspurnir vegna þessa og því að er til svar að tímabilið frá lokum september hefur verið mjög viðkvæmt og bæjarfulltrúar meirihluta bæjarstjórnar sammælst um að vinna við þessar erfiðu aðstæður þurfi háttvísi og trúnað.

Nokkrar blaðagreinar hafa verið birtar undanfarnar vikur eftir þau sem mesta ábyrgð bera á þróun mála á Álftanesi. Gegn um sneitt lýsa þau orð þessari dæmalausu fyrringu, sem við blasir öllum sem skilja vilja það ófremdarástand, sem búið er að koma okkur Álftnesingum í á kjörtímabilinu. Þetta málæði þessara aðila er dæmalaust yfirklór. Vita þau ekki enn hvaða tjóni þau hafa valdið?

Því miður þurfa Álftnesingar nú að taka á honum stóra sínum af æðruleysi, við fordæmalausar aðstæður bæði á landsvísu og hér heima fyrir.

Nú gengur í garð jólahátíðin, með allri þeirri gleði sem fylgir. Höfum í heiðri gömlu góðu gildin, með samheldni fjölskyldna og samhug nágranna, kunningja og vina.

Ágætu Álftnesingar, gleðileg jól.

Guðmundur