Tuesday, September 22, 2009

Hugmyndasmiður Á - listans og ,,gróðafíknin."

Hugmyndasmiður Á – listans, kaup á landi og ,,gróðafíknin."

Það var í apríl 2002 að aðalhugmyndasmiður Á – listans Ari Sigurðsson og Sigurður Magnússon, þá í fyrsta sæti framboðslistans fyrir hreppsnefndarkosningar í maí það ár, gerðu sér ferðir til eiganda lands Brekku. Erindið var að falast eftir landi til kaups fyrir íbúðabyggð við Suðurnesveg. Megin málið væri að skipuleggja þar byggð fyrir unga Álftnesinga, svo sem Sigurður hélt fram á hreppsnefndarfundum síðar. Eftir nokkurn þrýsting Ara og Sigurðar var gerður samningur um kaup Loftorku á landinu, þar sem nú heitir Brekkuland, Ásbrekka og Bæjarbrekka. En Ari Sigurðsson gekk erinda Loftorku á fölskum forsendum Sigurðar. Skipulagi reitsins var breytt og byggðar þar fjölmargar íbúðir, en einungis eitt hús sérstaklega ætlað ungum Álftnesingum, sem Búseti byggði.

Loftorka borgaði ,,lágmarksgjald“ pr. íbúðareiningu, vann gatnagerðina, byggði sumar íbúðanna og seldi og seldi auk þess lóðir til einstaklinga eða byggingarverktaka. Ekki fara þó sögur af miklum hagnaði Loftorku vegna viðskiptanna.

Nú vaknar sú spurning hvort Sigurður sé sérstaklega að meina að þessi gjörningur hafi verið vafasamur í meira lagi, sbr. grein Sigurðar í Fréttablaðinu í gær 21. september. Í greininni kemur fram í fyrirsögn ,,gróði af Álftanesi í útlöndum.“ Þar er fjálglega lýst gróðafíkn verktaka, þeirra sem keypt hafa land af landeigendum til uppbyggingar.

Það er svo að land á Álftanesi, það sem byggt hefur verið, hefur að lang mestu leiti verið selt beint til einstaklinga af eigendum landsins eða hin síðari ár til byggingaraðila sem síðan hafa eftir atvikum byggt ágæt hverfin okkar Álftnesinga.

Það gerist hins vegar vorið 2005 að bæjarsjóður eignast hluta lands á miðsvæðinu og eðli málsins skv. er því bæjarsjóður söluaðili þess hluta svæðisins, sem ,,byggingarréttur“ hefur verið seldur á síðan. Var það yfirlýst markmið bæjarstjórnar veturinn 2005 til 2006 að úthluta til einstaklinga um 80 íbúðareiningum á svæðinu í einbýli, raðhúsum og fjölbýli sumarið 2006 á sanngjörnu verði. Sigurður beitti sér fyrir því að svo varð ekki, með eftirminnilegum hætti.

Sigurður finnur það út að bæjarsjóður hafi orðið af yfirgengilegum gróða, vegna fyrirkomulags sölu lóða undanfarin ár. Segir að bæjarsjóður væri ,,skuldlaus“ svo sem ráða má af hans dæmi. Grein Sigurðar í Fréttablaðinu er athyglisvert innlegg í skrítna umræðu Sigurðar um áhrif verktaka á framvindu uppbyggingar á Álftanesi.

Skemmst er að minnast ótrúlegrar framgöngu Sigurðar, þá bæjarstjóri, á fundi bæjarráðs Álftaness 9. til 13. júlí sl. Fundargerð þess fundar er kapítuli út af fyrir sig. Á þeim fundi lagði Sigurður fram 6 frágengna samninga við byggingarverktakafyrirtækið Ris ehf. Samningarnir voru lagðir fram á fundinum til afgreiðslu bæjarráðs, án þess að kynnt hafi verið í fundarboði hvað stæði til. Án þess að einu sinni fulltrúar Á – lista á fundinum eða formaður bæjarráðs vissu hvað Sigurður hafði undirbúið eða til hvers væri ætlast á fundinum. Samningunum sex var bara dreift á fundinum og skildu þeir samþykktir möglunarlaust. Þannig vann nú Sigurður, enda stjórnsýsla undir hans forystu einsdæmi á öllu landinu.

Athyglisvert var að samningur nr. 6 við Ris ehf, sem lagður var fram beint á fundinum, var samkomulag um kröfu KBbanka að Ris ehf. skipti um kennitölu og stofnaði þar með nýtt fyrirtæki um byggingarframkvæmdir á vegum Búmanna. Sá samningur er nr 7 (eða nr. 1 eftir atvikum), gagnvart Ris ehf, sem samþykktur var í bæjarstjórn 28. maí sl. Krafa KBbanka var vegna samþykkts framkvæmdaláns til Ris ehf. vegna framkvæmdanna.

Sigurður talar um skuldlausan bæjarsjóð, hefði hans ,,verktakapólitík“ ráðið för. Hvernig stendur þá á því að skuldir og skuldbindingar bæjarsjóðs eru nú um eða yfir 6 milljarðar, eða meir en sexfaldar ártekjur? Slík var nú frammistaða bæjarstjórans fyrrverandi, sem valdi þá leið að hafa ,,valdsprotann“ í eigin hendi alfarið, því fór sem fór.

,,Vald“ bæjarstjóra er vandmeðfarið, en vissulega framkvæmir bæjarstjóri ekkert án þess að stuðningur eða samþykki bæjarstjórnar sé til staðar. Því var öðruvísi varið með Sigurð, sem lét af störfum bæjarstjóra á aukafundi bæjarstjórnar 9. september sl.

Guðmundur

Sunday, September 20, 2009

Gjaldþrota bæjarsjóður

Á morgun 21. september eru liðnir 60 dagar frá því að þrír fulltrúar fyrrum Á - lista höfnuðu endurkomu Kristjáns Sveinbjörnssonar í bæjarstjórn á ný. En ráðuneyti sveitarstjórnarmála úrskurðaði þann 23. júlí sl. að Kristján ætti að taka sæti sitt á ný í bæjarstjórn. Síðan hefur allsherjar uppnám verið í bæjarstjórn. Á aukafundi bæjarstjórnar 9. september urðu þó þau tíðindi að umboðslausum bæjarstjóranum var sagt upp störfum. Síðan reyndar ekki söguna meir, sama upplausnin ríkir og nú hefur formaður bæjarráðs tekið við ábyrgðarleysinu, sem oddamaður á milli þriggja fulltrúa D - lista annars vegar og hins vegar tveggja fulltrúa fyrrum Á - lista og Krisjáns. Það gefur auga leið að ekki verður gæfulegt framhaldið í bæjarstjórninni, þar sem bæjarstjórnin er með öllu óstarfhæf.

Á fundi bæjarráðs 17. september sl. lagði ég fram tillögu þar sem óskað var eftir fundi með eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Mér þótti þessi tillaga eðlileg, þó ekki væri lengra gengið en að óska eftir fundinum.

Við upphaf umræðu um mál nr. 3 í fundargerðinni, sagði bæjarstjóri frá fundi hans og skrifstofustjóra með framkvæmdastjóra þessarar nefndar. Á þeim fundi kom frá að einungis dagaspursmál væri hvenær nefndin myndi óska eftir fundi með bæjarstjórn Álftaness í ljósi mjög alvarlegrar og erfiðrar stöðu bæjarsjóðs.

Á fundum undanfarnar vikur hafa hluti bæjarfulltrúa hist og hefur verið gerð tilraun til þess að koma á starfhæfri bæjarstjórn með myndun meirihluta, sem einbeitti sér að tilteknum afmörkuðum verkefnum til vors. Eitt megin atriða sem rædd voru á þessum fundum var að við hefðum sjálf frumkvæði að því að óska eftir fundi með eftirlitsnefndinni. Það þarf nú ekki neina sérfræðinga til að sjá að bæjarsjóður Álftaness er gjaldþrota. Sú þróun fulltrúa Á - lista undir ötulli forystu fyrrverandi bæjarstjóra, að gera bæjarsjóð gjaldþrota, hófst strax í júní 2006. Séu ársreikningar 2006, 2007 og 2008 skoðaðir og bornir saman (eru á heimasíðunni alftanes.is) kemur í ljós að strax árið 2007 var ljóst í hvað stefndi. Þegar fjármálakreppan skall á haustið 2008, var bæjarsjóður þegar gjaldþrota. Hins vegar finnst fyrrverandi bæjarstjóra ,,sniðugt" að benda á að kreppan eigi alla sök, því fer reyndar víðsfjarri. Axarsköft fyrrum bæjarstjóra Á - listans verða Álftnesingum dýr.

Aftur að tillögu minni á síðasta fundi bæjarráðs. Tillagan var þessi:
,,Bæjarráð samþykkir að leita nú þegar eftir fundi bæjarstjórnar með Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga. Bæjarstjóri boði fundinn."
Skýring:
,,Í ljósi mjög erfiðrar stöðu bæjarsjóðs verði óskað fundar, helst nk. mánudag eða þriðjudag. Bæjarstjóri og fjármálastjóri útbúi tilhlýðileg gögn um stöðu bæjarsjóðs, til að leggja fram á fundinum. Fjármálastjóri verði einnig á fundinum. Markmið fundarins er að fá ráðgjöf um leiðir í erfiðri stöðu."

Fyrrverandi bæjarstjóri, sem sat fundinn lagði til frávísun á tillögunni, sem formaður bæjarráðs samþykkti. Þar með kom tillagan ekki til afgreiðslu á fundinum.
Þetta er nú það sem kallað er á góðri íslensku ,,að berja höfðinu við steininn."
Ég lít svo á að það liggi í hlutarins eðli að fá fund með eftirlitsnefndinni, vil að bæjarstjórn hafi frumkvæði að slíkum fundi. Það er mikill munur á hvort við óskum eftir fundinum eða hvort bréf komi frá nefndinni, með boð um fundinn.

Guðmundur

Sunday, September 13, 2009

,,Fréttaskýring" í Mogga 11. sept. sl.

Ég sá ástæðu til þess áðan að senda Morgunblaðinu eftirfarandi athugasemd vegna ,,fréttaskýringar" Steinþórs Guðbjartssonar í Mogga 11. sept. sl.
Þennan pistil sendi ég Mogga.

Varðandi Álftanes og þróun mála.

Ég geri athugasemdir við ,,fréttaskýringu” Steinþórs í Mogganum á föstudaginn 11. sept. ,,Fréttaskýringunni” er enn haldið á lofti á mbl.is
Það er mjög orðum aukið að ,,unnið hafi verið þrotlaust að myndun starfhæfs meirihluta.” Upphaf þessa einkennilega tímabils er 24. júlí sl. þegar fyrrum samherjar Kristjáns Sveinbjörnssonar hafna endurkomu hans. En Samgönguráðuneytið hafði kveðið upp all sérkennilegan úrskurð daginn áður vegna kæru Kristjáns.

Fyrrum bæjarstjóra tókst að þvæla svo málum í eigin liði upphaflegs Á – lista, að það var 18. ágúst að Margrét Jónsdóttir hafði frumkvæði að því að kalla 6 af 7 bæjarfulltrúum saman til fundar, þ.e. þremur vikum fyrir aukafund bæjarstjórnar 9. sept. sl.

Vissulega hefur Margrét lagt á sig mikla og óeigingjarna vinnu, en það voru fleiri sem lögðu drjúga hönd á plóg. Fulltrúar D – lista komu að borðinu heils hugar og fögnuðu frumkvæði Margrétar og lögðum við mikið á okkur við að ná fram ásættanlegri niðurstöðu um starfhæfa bæjarstjórn. Því miður virtust fyrrum bæjarstjóri og fyrrum forseti bæjarstjórnar koma að þessum samræðum áhugalaus og með hangandi hendi. Þau tvö eru einu fulltrúar Á – lista nú. En það kom svo endanlega í ljós á fundi 3. sept. að þeirra aðkoma að þessum viðræðum, virðist hafa verið til að fresta sem lengst því óumflýjanlega. Nefnilega að bæjarstjóri viki úr starfi. 48 dagar liðu frá því upplausnin í Á – listanum kom upp á yfirborðið, þar til bæjarstjóri var settur af á aukafundi bæjarstjórnar 9. sept sl.

Mér finnst lélegt í ,,fréttaskýringunni” að vitnað sé í samtöl ,,margra viðmælenda” nafnlausra, þar sem helst kemur fram að Sigurður, Kristján og Guðmundur þurfi allir að víkja.

Steinþór hafði samband við mig í síma á fimmtudeginum og við áttum ágætt spjall saman, þar sem ég skýrði andúð mína á bruðli því, sem fyrrum bæjarstjórinn hefur staðið fremstur í flokki fyrir.

Ég hef ekki legið á mínum skoðunum og ritað greinar í blöð til að vekja athygli á sukki með almannafé. Reyndar hef ég verið nokkuð einn um að viðra mínar skoðanir og andúð á framferði fyrrum bæjarstjóra. Ég tel ekki rök fyrir því að ég víki úr bæjarstjórn, á grundvelli þess að ég hef gagnrýnt og ekki legið á skoðunum mínum.

Megin mál í símtali Steinþórs við mig virtist vera að fá svar við því hvort mér finndist að Kristján ætti að víkja úr bæjarstjórn. Ég tel mig hafa skýrt málið á vandaðan hátt, en gerði mér ekki grein fyrir því í símtalinu, að megin mál væri að leiða mig í gildru og hafa að engu skýringar mínar í símtalinu.
Mér finnst leitt þegar fréttamenn afvegaleiða umræðu og einkum með slíkri ,,fréttaskýringu” sem þessari Steinþórs, þar sem ég tel að hann veitist með kjánalegum hætti að mér persónulega í skjóli ,,margra viðmælenda.”
Svona fréttapistill gerir bara illt verra á viðkvæmum tímum.

Guðmundur

Tuesday, August 25, 2009

Ólögleg gatnagerð við Suðurtún og skóla

Komið hefur í ljós að ekki liggur fyrir framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar sunnan Suðurtúns og Álftanesskóla. Samkvæmt lögum eru ekki heimilar neinar framkvæmdir í bæjarfélaginu án slíks leyfis, sem þarf samþykkt skipulags- og byggingarnefndar og bæjarstjórnar.

Gatnagerðin sunnan Suðurtúns er því ólögleg. Fulltrúar D - lista hafa krafist þess marg ítrekað að ekki verði af þessum fáránlegu framkvæmdum við veginn, sem er nánast inni í görðum fólks og sker í sundur barnaleikvöllinn við Suðurtún og sneyðir inn á lóðina við Álftanesskóla. Athyglisvert er að taka á burt stóran hluta 40 milljón króna framkvæmdar frá því sumarið 2005, þ.e. lóðarinnar austan skólans.

Yfir sjö hundruð íbúar mótmæltu þessum vegi sunnan Suðurtúns, þegar auglýst var breytt deiliskipulag miðsvæðis. Allir íbúar í Suðurtúni mótmæltu. Allt kom fyrir ekki og er þessi yfirgangur að frumkvæði bæjarstjóra með ólíkindum.

Þvílík fyrring.

Slík er stjórnsýslan á Álftanesi að ekki er hlustað á mótbárur og allra síst tekið tillit til undirskriftarlista meirihluta íbúa. Stjórnsýsla á Álftanesi er engri annarri lík á landinu öllu. Þvílík er fyrran og það ótrúlega er að bæjarstjórinn virðist hreinlega komast upp hvað hvað eina, sem honum dettur í hug, þó umboðslaus sé nú og rúinn trausti.

Það er kostulegt að nú er reyndar stokkið til og útbúið bréf frá Ris ehf. dags. í gær!!! Ris er framkvæmdaaðilinn. Tilgangurinn er að klóra yfir skítinn. Nú stendur yfir fundur í skipulags- og byggingarnefnd Álftaness sem, hófst kl. 8 í morgun. Á dagskrá er að ,,redda" framkvæmdaleyfinu, sem síðan verður svo væntanlega þjösnað í gegn á fundi bæjarráðs á fimmtudaginn kemur.

Hvað á að gera þegar menn brjóta svo lög í ofanálag á alla vitleysuna, sem í gangi er á Álftanesi?

Guðmundur

Sunday, August 23, 2009

Bæjarstjórn, framvinda.

Fulltrúar D - lista hittu Margréti Jónsdóttur á stuttum fundi fimmtudaginn 20. ágúst. Bæjarfulltrúar D - lista óskuðu eftir fundinum. Sú spurning var borin upp öðru sinni síðan 28. júlí sl. hvort hún gæti samþykkt að hefja viðræður um myndun nýs meirihluta með fulltrúum D - lista í ljósi alvarlegrar stöðunnar nú. Svarið: Nei.

Margrét hafði óskað eftir fundi sex bæjarfulltrúa (ekki Kristjáni) á fimmtudeginum, en ekkert varð af þeim fundi. Fulltrúar D - lista óskuðu eftir að þeim fundi væri frestað til föstudags 21. ágúst og að Kristján yrði boðaður einnig. Þannig að allir bæjarfulltrúar færu yfir stöðuna.

Margrét boðaði fund kl. 10.30 á föstudeginum, ekkert varð af fundinum vegna fjarveru hluta bæjarfulltrúa. Fundur hefur verið boðaður á mánudaginn, þann 24. ágúst.

Að minni hyggju er megin tilgangur fundarins að fara yfir (ef hægt verður) þessa einkennilegu stöðu bæjarstjórnar. Ræða á fundinum hugmyndir Margrétar frá því á fundi að hennar frumkvæði þann 18. ágúst. Á þann fund boðaði hún ekki Kristján.

Á fundinum á mánudaginn kemur þarf að ræða pattstöðuna í bæjarstjórn og til hvaða ráða hægt sé að grípa, til að hér verði ekki áfram upplausn sem nú er.

Guðmundur

Wednesday, August 19, 2009

Fulltrúar Á - lista og fyrrum fulltrúar ná ekki saman.

Formaður bæjarráðs boðaði 6 af sjö bæjarfulltrúum á fund í gærkvöldi. Erindið var að lýsa því yfir að hún sá ekki flöt á samvinnu með Kristjáni Sveinbjörnssyni.
Hún las stutta tilkynningu og fór svo yfir sínar hugmyndir að framvindunni, við núverandi aðstæður.
Hennar vilji stendur til þess að þessir 6 bæjarfulltrúar myndi nýjan meirihluta bæjarstjórnar Álftaness.
Hún biðlar sterkt til fulltrúa D - lista um að taka þátt í vinnu við að ná fram þessari tillögu hennar.
Fundurinn var stuttur, enda ekki ástæða til að staldra lengi við orðinn hlut. Ekki er því að leyna að hugurinn hvarflar til daganna 27. til 29. júlí sl. þar sem þá fulltrúar Á - lista kepptust við að mála hvert annað út í horn.
Staðan er sú núna að formaður bæjarráðs hefur óskað eftir að hennar tillögur og hugmyndir verði skoðaðar til morguns, en hún hefur óskað eftir fundi með þessum sömu á morgun.
Ljóst er að með þessu er meirihluti Á - lista og fyrrum fulltrúa Á - lista fallinn í annað sinn á þremur vikum.
Yfirlýsing þessara aðila í fundargerð bæjarráðs frá 6. ágúst sl. var og er marklaus og er því bæjarstjóri umboðslaus í sínu starfi. Það er eðli máls samkvæmt algerlega óviðunandi.

Guðmundur

Saturday, August 15, 2009

Fundur um bæjarmálin

Stjórn Sjálfstæðisfélagsins á Álftanesi og aðal- og varabæjarfulltrúar hittust á fundi í vikunni. Ákveðið var að halda fund um bæjarmálin í Haukshúsum á miðvikudaginn 19. ágúst kl. 20.

Bæjarfulltrúar D – lista munu flytja á fundinum stuttar framsögur, en megin mál er aðkoma annarra íbúa með fyrirspurnum og almennum umræðum.

Að margra mati er tímabært að fá fund með íbúum um þá alvarlegu stöðu sem hér á Álftanesi er, einkum varðandi fjármálin og alvarlega óstjórn.

Stjórnsýsla á Álftanesi er engri annarri lík á öllu landinu og eru uppákomur í bæjarstjórn dagana 24. til 29. júlí sl. talandi dæmi um þetta fyrirbrigði.
Þá daga höfnuðu fulltrúar Á – lista samvinnu við hvort annan eftir því sem við átti, ekki var hægt að hefja samvinnu við Kristján, eftir að ráðuneytið hafði úrskurðað að honum bæri að taka sæti í bæjarstjórn á ný. Engin samvinna yrði við Kristján, hann tilheyrði ekki lengur Á – listanum! Svo lýsti formaður bæjarráðs í einstakri yfirlýsingu sinni þann 27. júlí sl. yfir vanstrausti á bæði Kristján og bæjarstjórann.

Þá var ljóst að allt var upp í loft á þeim bænum, sem síðan berast þær fréttir að fulltrúar Á – lista og fyrrum fulltrúar Á – lista segja að bæjarstjóri starfi í þeirra skjóli, aðeins eigi eftir að ná saman um málefnin á ný!!!!!

Miðað við samþykktir bæjarstjórnar í maí og bæjarráðs í júlí á tillögum þá fulltrúa Á – lista um m.a. annars framkvæmdir á miðsvæðinu, þá virðist eitt vera nokkuð ljóst –

Það er hvergi góðæri í öllum heiminum, nema á Álftanesi.

Guðmundur