Friday, March 20, 2009

Verður Álftanes módel Vinstri grænna á landsvísu?

Miðað við skoðanakannanir þessa dagana stefnir í vinstri stjórn tveggja flokka. Samfylkingar og Vinstri grænna.
Er nema von að spurt sé hvort Álftanes verði módel Vinstri grænna á landsvísu?
Við síðust kosningar til bæjarstjórnar Álftaness tilkynnti framboð Á – listans að um óflokksbundið framboð væri að ræða.
Strax daginn eftir kjördag urðu fulltrúar framboðsins fulltrúar tiltekinna stjórnmálaflokka og athygli vakti að bæjarstjóri varð þrátt fyrir allt fulltrúi Vinstri grænna. Frammistaða þessa framboðs Á- listans í meirihluta bæjarstjórnar undir stjórn og alræði bæjarstjórans er rosaleg.
Þegar efnahagskreppan skall á í haust með hruni bankanna var eins og bæjarstjórinn hefði fengið kjaftshögg. Svo virtist sem keyrt hafi verið áfram af óraunhæfum áætlunum og bjartsýni úr hófi fram, því til staðfestingar er fróðlegt að rifja upp atriði úr fundargerðum bæjarstjórnar.
Staða bæjarsjóðs var fyrir hrunið orðin geigvænleg, en með holskeflu efnahagskreppunnar er ljóst að vandi bæjarsjóðs er illviðráðanlegur. Endurskoðun fjárhagsáætlun 2008 sl. haust var í skötulíki og líklegt að vanáætlaður kostnaður svo sem vegna vaxta verði í hæstu hæðum. Þrátt fyrir að bæjarráði hafi í desember sl. verið falið af bæjarstjórn að leggja fram endurskoðaða fjárhagsáætlun 2009 nú í mars, þá hefur engum, alls engum, upplýsingum verið til að dreifa í bæjarráði frá áramótum.
Ég hef óskað eftir og fékk samþykkt í bæjarráði að lagðar yrðu fram upplýsingar um þóknanir bæjarfulltrúa og allra nefndarmanna vegna áranna 2006, 2007 og 2008. Þessar upplýsingar liggja auðvitað fyrir, en það vefst fyrir bæjarstjóranum að leggja þær fram. Af hverju?
Engar upplýsingar úr ársreikningi 2008 hafa verið lagðar fram. Svo virðist sem allt sé gert, sem mögulegt er, til að fresta og tefja framvindu tiltekinna mála er varða fjármál og stjórnsýslu bæjarfélagsins.
Á Álftanesi er staðan sú að mjög líklegt er að heildarskuldir bæjarsjóðs að meðtalinni skuld vegna leigusamnings við Fasteign um íþróttamannvirkin og byggingu sundlaugarinnar séu að nálgast sexfaldar áætlaðar árstekjur 2009! En skuldir bæjarsjóðs í árslok 2005 voru rétt við áætlaðar árstekjur 2006.
Er nema von að spurt sé hvort Álftanes verði módel Vinstri grænna á landsvísu?
Guðmundur

Thursday, March 19, 2009

Búmenn - byggir á misskilningi

Undirbúningur samninga við Búmenn um ,,uppbyggingu“ fyrir eldri íbúa er á misskilningi byggður. Á 43 fundum í vetur hefur vinnuhópur Álftnesinga komist að niðurstöðu um hönnun húsnæðis, svo sem kynnt hefur verið í bæjarráði og bæjarstjórn. Niðurstaða vinnuhópsins er í meginatriðum að Búmenn byggi í fyrsta áfanga bráðabirgðahúsnæði fyrir skrifstofur bæjarfélagsins og tíu 70 m² íbúðir fyrir eldri borgara. Þessari bráðabirgðaaðstöðu fyrir skrifstofur bæjarfélagsins verði síðan einhvern tíma breytt í þjónustumiðstöð fyrir eldir íbúa bæjarfélagsins. Hvenær, veit enginn. En aðstaða fyrir þá sem eldri eru byggir á lögum, en skv. áætlunum fulltrúa Á – lista er enginn áhugi á því að fara að þeim lögum.

Athyglisvert er að ekki liggja fyrir neinir samningar við Búmenn, heldur einungis viljayfirlýsing um samninga frá árinu 2006.

En til hvers voru þá samningar við Eir frá árinu 2005 eyðilagðir? Hefðu þeir hagstæðu samningar gengið eftir, hefði mannvirki það sem Eir átti á byggja verið tekið í notkun fyrir lok árs 2007. Meginmál samninga við Eir á sínum tíma var þjónusta við eldri íbúa bæjarfélagsins. Í fyrsta áfanga þess verkefnis áttu að vera íbúðir í ýmsum stærðum fyrir eldri íbúa, þjónustumiðstöð fyrir eldri íbúa, tómstundaaðstaða og aðstaða fyrir Félaga eldri borgara á Álftanesi. Auk þess bæjarskrifstofur, bókasafn bæjarfélagsins og aðstaða fyrir sóknarnefnd í einskonar sóknarheimili. Auk alls þessa voru miklar líkur á að heilsugæsla yrði í húsnæðinu, en samningar um það voru komnir vel á veg á sínum tíma. Samningur við Eir var sérstaklega hagfelldur bæjarfélaginu, með mjög hagstæðri leigu bæjarsjóðs á aðstöðu. Ekki síst var ætlað að gjaldtöku vegna íbúða fyrir eldri borgara væri mjög stillt í hóf.

Að minni hyggju er byrjað á öfugum enda varðandi verkefnið nú. Byrjað er á að ,,hanna“ mannvirki, án þess að um leið sé hugað að samningum um verkefnið við Búmenn. Væntanlega hefur allur áfallinn kostnaður fram að þessu fallið á bæjarsjóð. Allavega met ég það svo, því að þannig virkar ,,kerfi“ Búmanna, þeim er ekki ætlað að borga neitt, heldur greiðir sá sem á í hlut hverju sinni allan kostnað. Búmenn virka þannig að þeir taka lán hjá Íbúðalánasjóði og endurlána síðan bæjarfélaginu með nokkuð háu álagi.

Búmenn eru ekki valkostur til slíkrar uppbyggingar, sem talað er um að verði á Álftanesi til nota einhvern tíma í framtíð. Búmenn hafa enga sérþekkingu í þjónustu við eldri borgara, enda er Búmenn bara dýr milliliður lánsfjár. Það er athyglisvert að á sama tíma og hér eru uppi fyrirætlanir um samninga við Búmenn hefur annað bæjarfélag hætt slíkri samvinnu. Sandgerði gerði árið 2004 samning við Búmenn um byggingu mannvirkis í miðbænum. Svo forsjálir voru Sandgerðingar að þeir fengu inn í samninginn endurskoðunarákvæði um mögulega útgönguleið á fimm ára fresti, en slíkt er ekki almennt í samningum við Búmenn, heldur er þar yfirleitt um að ræða a.m.k. 30 ára samninga. Sandgerði hefur hætt ,,samvinnu“ við Búmenn og greitt þeim upp í topp og reka nú sitt mannvirki á eigin forsendum.

Athyglisvert væri að heyra hver reynsla bæjarfulltrúa í Vogum er af samskiptum við Búmenn, en þar er nýbyggt mannvirki á grundvelli samnings, sem engin endurskoðunarákvæði eru í. Um er að ræða í því tilviki a.m.k. 30 ára samning. Einnig ,,hafa“ Búmenn ,,byggt“ í Hveragerði.

Ég á ekki von á öðru en að augu fulltrúa Á – lista opnist fyrr en seinna, þegar þau átta sig á að þau eru komin í ógöngur í þessu máli. Búin að eyða miklu fé til undirbúnings máls, sem engir samningar liggja fyrir um. Með símtali væri hægt að fá réttar upplýsingar úr reynslubanka þeirra Sandgerðinga, Voga og Hvergerðinga.

Ég tel að eini árangurinn af ætlaðri ,,samvinnu“ við Búmenn á Álftanesi verði hár reikningur á bæjarsjóð vegna óraunhæfs undirbúnings að mannvirki, sem aldrei rísi.

Guðmundur

Thursday, March 5, 2009

Búmenn byggja skrifstofur?

Á fundi bæjarstjórnar 26. febrúar sl. var einkennileg uppákoma að hætti fulltrúa Á – listans við umræður um fundargerð bæjarráðs frá 12. febrúar sl.
Á umræddum fundi bæjarráðs var skellt inn á fundinn skýrslu vinnuhóps um byggingu fyrir eldri íbúa. Þessa var ekki getið í fundarboði, heldur var málið sett inn á dagskrárliðinn: Miðbær – staða mála.
Á fundi bæjarstjórnar gerðu fulltrúar Á – lista mikið úr því að ég hafði haft samband við forstjóra Íbúalánasjóðs í tölvuskeyti.
Fulltrúar Á – lista fullyrtu að ég væri með því að reyna að eyðileggja málið!
Það sem er verulega alvarlegt við mál þetta, er að bæjarstjóri hefur stýrt vinnunni varðandi uppbyggingu Búmanna fyrir eldri íbúa yfir í að Búmenn byggi skrifstofur fyrir bæjarfélagið í stað aðstöðu skv. lögum fyrir þá sem eldri eru. Auk skrifstofa verða tíu 70 m ² íbúðir í fyrsta áfanga byggingarinnar.

Auk þess hefur bæjarstjóri reynt að afla því fylgis að Íbúalánasjóður veiti lán á grundvelli uppbyggingar fyrir þá sem eldri eru, nýta síðan húsnæðið að stærstum hluta í allt annað.
Athyglisvert er að engir samningar, alls engir, liggja fyrir um samvinnu við Búmenn . Allt það sem búið er að gera og eyða mikilli vinnu í og miklum peningum, byggir á almennt orðaðri viljayfirlýsingu við Búmenn frá árinu 2006.
Engir samningar liggja fyrir um heildarkostnað eða ætlaða kostnaðarhlutdeild bæjarsjóðs, uppbyggingarhraða eða afleiddan kostnað bæjarsjóðs svo sem vegna gatnagerðar og fleira.
Eina sem hefur legið fyrir lengi er að nú á að hefja byggingarframkvæmdir! Í fyrra átti að hefjast handa um haustið.
Í dag er sagt að byggingarframkvæmdir verða hafnar með haustinu!
Meginmál er, að með samningi við Eir árið 2005, sem fulltrúar Á – lista eyðilögðu sumarið 2006, var markmiðið að fullgera fyrsta áfanga þess mannvirkis í lok árs 2007. Í þeirri byggingu átti m.a. að vera aðstaða fyrir eldri íbúa skv. lögum.
Verði af þessum áformum fulltrúa Á – lista um að skrifstofur bæjarfélagsins verði í stað lögbundinnar aðstöðu fyrir eldri borgara, þá er hæpið að þeir eldri fái boðlega aðstöðu næstu árin. Varla fara menn að innrétta húsnæðið fyrir skrifstofur og rífa síðan innan skamms tíma. Miðað við áform fulltrúa Á – listans verður langt að bíða lögbundinnar aðstöðu fyrir þá eldri. Eins yfirgripsmikil og starfsemi Félags eldri borgara á Álftanesi er orðin, þá er með öllu óskiljanlegt að ekki sé meiri metnaður þeim til handa og öðrum þeim eldri sem þurfa aðstöðu í dag.
Það er með ólíkindum hvernig viðbrögð fulltrúa Á – lista verða ævinlega, þegar þeim er bent á það með skýrum og einföldum hætti að þau séu að vaða reyk. En dæmi um slíkt er uppákoman á fundi bæjarstjórnar þann 26. febrúar sl. Bókanir í fundargerð þess fundar segja í raun meira en mörg orð.
Guðmundur