Sunday, September 20, 2009

Gjaldþrota bæjarsjóður

Á morgun 21. september eru liðnir 60 dagar frá því að þrír fulltrúar fyrrum Á - lista höfnuðu endurkomu Kristjáns Sveinbjörnssonar í bæjarstjórn á ný. En ráðuneyti sveitarstjórnarmála úrskurðaði þann 23. júlí sl. að Kristján ætti að taka sæti sitt á ný í bæjarstjórn. Síðan hefur allsherjar uppnám verið í bæjarstjórn. Á aukafundi bæjarstjórnar 9. september urðu þó þau tíðindi að umboðslausum bæjarstjóranum var sagt upp störfum. Síðan reyndar ekki söguna meir, sama upplausnin ríkir og nú hefur formaður bæjarráðs tekið við ábyrgðarleysinu, sem oddamaður á milli þriggja fulltrúa D - lista annars vegar og hins vegar tveggja fulltrúa fyrrum Á - lista og Krisjáns. Það gefur auga leið að ekki verður gæfulegt framhaldið í bæjarstjórninni, þar sem bæjarstjórnin er með öllu óstarfhæf.

Á fundi bæjarráðs 17. september sl. lagði ég fram tillögu þar sem óskað var eftir fundi með eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Mér þótti þessi tillaga eðlileg, þó ekki væri lengra gengið en að óska eftir fundinum.

Við upphaf umræðu um mál nr. 3 í fundargerðinni, sagði bæjarstjóri frá fundi hans og skrifstofustjóra með framkvæmdastjóra þessarar nefndar. Á þeim fundi kom frá að einungis dagaspursmál væri hvenær nefndin myndi óska eftir fundi með bæjarstjórn Álftaness í ljósi mjög alvarlegrar og erfiðrar stöðu bæjarsjóðs.

Á fundum undanfarnar vikur hafa hluti bæjarfulltrúa hist og hefur verið gerð tilraun til þess að koma á starfhæfri bæjarstjórn með myndun meirihluta, sem einbeitti sér að tilteknum afmörkuðum verkefnum til vors. Eitt megin atriða sem rædd voru á þessum fundum var að við hefðum sjálf frumkvæði að því að óska eftir fundi með eftirlitsnefndinni. Það þarf nú ekki neina sérfræðinga til að sjá að bæjarsjóður Álftaness er gjaldþrota. Sú þróun fulltrúa Á - lista undir ötulli forystu fyrrverandi bæjarstjóra, að gera bæjarsjóð gjaldþrota, hófst strax í júní 2006. Séu ársreikningar 2006, 2007 og 2008 skoðaðir og bornir saman (eru á heimasíðunni alftanes.is) kemur í ljós að strax árið 2007 var ljóst í hvað stefndi. Þegar fjármálakreppan skall á haustið 2008, var bæjarsjóður þegar gjaldþrota. Hins vegar finnst fyrrverandi bæjarstjóra ,,sniðugt" að benda á að kreppan eigi alla sök, því fer reyndar víðsfjarri. Axarsköft fyrrum bæjarstjóra Á - listans verða Álftnesingum dýr.

Aftur að tillögu minni á síðasta fundi bæjarráðs. Tillagan var þessi:
,,Bæjarráð samþykkir að leita nú þegar eftir fundi bæjarstjórnar með Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga. Bæjarstjóri boði fundinn."
Skýring:
,,Í ljósi mjög erfiðrar stöðu bæjarsjóðs verði óskað fundar, helst nk. mánudag eða þriðjudag. Bæjarstjóri og fjármálastjóri útbúi tilhlýðileg gögn um stöðu bæjarsjóðs, til að leggja fram á fundinum. Fjármálastjóri verði einnig á fundinum. Markmið fundarins er að fá ráðgjöf um leiðir í erfiðri stöðu."

Fyrrverandi bæjarstjóri, sem sat fundinn lagði til frávísun á tillögunni, sem formaður bæjarráðs samþykkti. Þar með kom tillagan ekki til afgreiðslu á fundinum.
Þetta er nú það sem kallað er á góðri íslensku ,,að berja höfðinu við steininn."
Ég lít svo á að það liggi í hlutarins eðli að fá fund með eftirlitsnefndinni, vil að bæjarstjórn hafi frumkvæði að slíkum fundi. Það er mikill munur á hvort við óskum eftir fundinum eða hvort bréf komi frá nefndinni, með boð um fundinn.

Guðmundur

1 comment:

  1. Daginn, GGG. Sigurður er siðblindur og það þarf að athuga með að lögsækja hann fyrir hönd fólksins, sem hér býr, og borgar þetta rugl. Ef hann er á biðlaunum, hver eru rökin vegna þess? Ég vona að fólkið hér fari að vakna og mótmæla þessu. Á-listinn er búinn að koma okkur 50 ár til baka. Verða þeir sóttir til saka?

    ReplyDelete