Ég óskaði eftir og fékk birt á mbl.is í dag eftirfarandi klausu:
„Mér finnst algerlega með ólíkindum, ef rétt reynist, að á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins nú um helgina verði ekki rætt um frammistöðu alþingismanna og forystu flokksins árin 2000 til 2008. Þá er um að ræða annan landsfund í röð, sem tekur ekki á þeim vandamálum sem hrjá flokkinn eftir kerfishrunið haustið 2008. Látið er hjá líða að því er virðist að gera upp fortíðina og aðkomu kjörinna fulltrúa flokksins á alþingi og forystu hans og andvaraleysi gagnvart þróun, stöðu þjóðarbúsins og velferð landsmanna.
Ljóst er að forysta flokksins og alþingismenn vissu um alvarlega þróun mála, a.m.k. allt frá árunum 2005 eða 2006, en svo virðist sem flotið hafi verið sofandi að feigðarósi. Aðvörunum sérfræðinga var ekki sinnt og eftirlitshlutverk alþingis drukknaði í hrunadansinum.
Meira að segja skipulögð glæpastarfsemi var látin óátalin og þreifst fyrir opnum tjöldum undir forystu veruleikafirtra eigenda bankanna, með fulltingi margra forhertra viðskiptaaðila bankanna. Fjármálakerfi landsins og mörg stórfyrirtæki sneri veruleikanum á haus og almenningur situr uppi með tjónið og landsmenn eru í átthagafjötrum. Hvernig gengur það upp að allt að 1600 manns mæti til Landsfundar nú undir slíkum formerkjum, ef ekki á að taka á vandamálinu?
Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla burði til að "ná vopnum sínum á ný" - til þess að það geti orðið þurfa menn að skipuleggja keikir framtíðarferðalagið, án þess að hafa rotinn farangur í bakpokanum."
Með kveðju, Guðmundur G. Gunnarsson
Thursday, June 24, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment