Saturday, March 6, 2010

29. maí 2010

29. maí í vor verða sveitarstjórnarkosningar.

Ég tel að einhverjir Álftnesingar haldi að ekki verði kosið á Álftanesi í sveitarstjórnarkosningunum. Það tel ég að sé afar hæpið. Til þess að svo geti orðið, þyrfti ráðherra sveitarstjórnarmála að beita því valdi sínu að sett væru lög um sameiningu án aðkomu Álftnesinga.

Ljóst er flestum Álftnesingum að hrikalegt fjárhagslegt klúður í meðferð almannafjár á yfirstandandi kjörtímabili, hefur orsakað algert hrun bæjarsjóðs, gjaldþrots.

Augljóst er að í sveitarstjórnarkosningum í vor, erum við Álftnesingar í þeirri sérkennilegu stöðu, að kjósa bæjarstjórn til einungis skamms tíma. Mín sýn er að markmið verði að nýtt sameinað bæjarfélag verði til á þessu ári.

Það eru augljósir hagsmunir Álftnesinga að svo verði.

Mín sýn á framvindu næstu mánaða er þessi:

Þegar skoðanakönnun um vilja Álftnesinga liggur fyrir, eftir daginn í dag, verði gerð samantekt á kostum og göllum sameiningar við þau bæjarfélög, sem helst er áhugi fyrir að Álftnesingar sameinist.

Skv. samningi við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga dags. 17. desember 2009 er gert ráð fyrir því að samhliða fjárhagslegri endurskipulagningu, verði skoðaðir sameiningarkostir við annað (önnur)bæjarfélag.

Samhliða sveitarstjórnarkosningum 29. maí í vor verði aftur skoðanakönnun meðal íbúa, að undangenginni góðri kynningu á valkostum.

Þegar niðurstaða sveitarstjórnarkosninga og skoðunarkönnunar 29. maí í vor liggur fyrir, verði hafnar formlega viðræður við það bæjarfélag, sem Álftnesingar velja.

Meginverkefni nýrrar bæjarstjórnar á Álftanesi eftir kosningar í vor verður að vinna að sameiningu Álftaness við annað (eða eftir atvikum önnur bæjarfélög), með það að megin markmiði að álögur vegna hækkunar fasteignagjalda, álags á útsvar og hækkunar þjónustugjalda vari ekki lengur en út árið 2010.

Á haustdögum verði kosið um sameiningu við valið bæjarfélag.

Í lok nóvember eða í byrjun desember verði kosningar í sameinuðu bæjarfélagi.

1. janúar 2011 taki við ný bæjarstjórn í sameinuðu bæjarfélagi.

Niðurstaða:´

Álftnesingar beri ekki skarðan hlut frá borði, hvað gjöld, útsvar og þjónustugjöld varðar, lengur en út árið 2010.

Strax árið 2011 verði fasteignagjöld, útsvar og þjónustugjöld orðin hófleg á ný og vonandi lægri en voru árið 2009.

Guðmundur

No comments:

Post a Comment