Niðurstaðan liggur nú ljós fyrir og Samfylking og VG eru í viðræðum um myndun ríkisstjórnar. Það eru fleiri möguleikar í spilunum varðandi myndun ríkisstjórnar, en hæpið er að Sjálfstæðisflokkurinn komi þar að málum, eins og málflutningur ,,andstæðinganna“ var í aðdraganda kosninganna. Það þótti henta vel að Sjálfstæðisflokkurinn væri blóraböggullinn og allt honum að kenna, sem aflaga fór. Nú eru líkur á að ESB Samfylkingarinnar getur orðið ásteytingarsteinn í viðleitni S og VG til framhalds samstarfs í ríkisstjórn. Hvað meina menn með því að halda fram að Samfylking hafi sigrað í kosningunum? Er það vegna skýrrar stefnu í ESB málinu? Það tel ég ekki vera og ekkert ljóst í þeim efnum. Hvaða málflutningur sigraði? Ef þeim tekst að setja kúrs til samstarfs í ríkisstjórn, þá spái ég því að brestir fari að myndast fljótlega vegna óstýrlátra hópanna sem að þessum framboðum standa. Hvað þá með meginverkið = að leysa vanda heimila og fyrirtækja í landinu? Er það ekki málið nr. 1, 2 og 3? Það er málið nr. 1, 2 og 3. Dægurflugur og framtíðarmúsík mega ekki þvælast fyrir þessum brýnustu verkum, svo sem gerðist í 80 daga ríkisstjórninni.
D- deildin.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf í alvarlega skoðun varðandi innra skipulag og stöðu flokksins í samfélaginu. Ýmsir og augljósir vankantar voru á málflutningi fulltrúa flokksins, aðferðafræði og auglýsingum fyrir kosningar nú.
Hvað kom fyrir sóknarviljann í D – deildinni?
Flokkurinn var drifinn í mikla vörn, þar sem fulltrúar hinna flokkanna fóru þá leið að dæma D – lista úr leik og það bar árangur til kjósenda. Það er háttur vinstri manna að vinna með slíkum hætti og hamra á, þegar færið er opið. Styrkjaruglið virtist síðan verða til þess, að allur vindur var úr hluta frambjóðenda flokksins og hluta hörðustu stuðningsmanna. Í hita umræðunnar um ótrúlega risastyrki til flokksins drukknuðu játningar forystu Samfylkingar og Framsóknar um styrkina til þeirra flokka á sama tíma. Einkum var athyglisvert hve umræðu um (Baugs)styrkina til Samfylkingarinnar var drekkt í fjölmiðlunum. Þeir eru miklir spunameistarar hóparnir sem tilheyra Samfylkingu. Eru öll kurl komin til grafar varðandi subbustyrkina til spunameistaranna?
Dæmi um spuna.
Talandi um spunameistara Samfylkingarinnar, þá kemur í hugann áætlun þeirra ágætu manna Lúðvíks Geirssonar bæjarstjóra í Hafnarfirði og Gunnars Svavarssonar alþingismanns (sem lenti í ónáð hjá formanni Samfylkingar á sínum tíma). En þeir ætluðu að skipta, svona ,,á ljúfu nótunum“ – það bara klikkaði. Bæjarstjórinn vildi á þing og Gunnar átti að verða bæjarstjóri. Bæjarstjórinn náði bara ekki inn á alþingi í kosningunum. Plottið gengur ekki alltaf upp hjá Samfylkingunni.
Landsfundurinn og hvað svo?
Það sem liggur á borðinu m.a. er að þeir sem sóttu Landsfund Sjálfstæðisflokksins voru að vissu leiti hafðir að fíflum. Í því sambandi má nefna framkvæmd fundarins, slagorð, ræðu fyrrverandi formanns og glundrið varðandi ESB niðurstöðuna.
Eftirfylgni ,,samstöðunnar“ á Landsfundinum varð síðan býsna skrautleg.
Varðandi ESB – af hverju að hræðast mögulega aðildarumræðuna? Ef árangur yrði af slíkum viðræðum, þá er það þjóðin sem hefur úrslitavaldið á endanum með kosningum. Af hverju að leggja gildrur til að reyna að fresta sem lengst umræðunni? Hvaða vit er í því að Sjálfstæðisflokkurinn hafni viðræðum fyrirfram, eða setji þessu máli afarkosti með tafaleikjum?
Ég hef óbeit á þeim fagurgala að ESB sé lausn á vanda dagsins í dag. Tel að slík umræða afvegaleiði alvarlega stöðu almennings í landinu vegna þess að það er númer eitt tvö og þrjú að koma með raunhæfar lausnir fyrir almenning og fyrirtækin. Tillögur Sjálfstæðismanna í aðdraganda þingkosninganna um 50% ,,frystingu“ afborgana almennings af fasteignaveðlánum í allt að þrjú ár verður að komast á nú þegar. Það sem minnihluta ríkisstjórnin samþykkti fyrir nokkru um greiðsluaðlögun fyrir einstaklinga með tilsjónarmanni, er allt of flókið og í raun algert rugl. Enda er það mjög að hætti vinstri manna lausna að vera ofan í hálsmálinu á liðinu.
Ótölulegur fjöldi einstaklinga og fyrirtækja er að komast upp með að borga ekki skuldir sínar, sumir hverjir algerlega ótrúlegar upphæðir, en þeir einstaklingar sem rembast við að standa í skilum með sínar skuldbindingar er stillt upp við vegg. Sumir virðast bara geta gengið ,,brosandi“ frá sínum skrautlegu skuldbindingum.
Verði það raunin að vextir lækki ekki hratt næstu þrjá til fjóra mánuði og gengi krónunnar nálgist einhverja skynsemi, þá er einfaldlega voðinn vís fyrir þá sem enn reyna að strögla við að standa í skilum við hræðilegar aðstæður.
ESB er ekki lausn í nútíð. ESB er framtíðarmúsík og óþarfi að hræðast slíka umræðu í þjóðfélaginu. Það eru reyndar önnur atriði framar í forgangsröðinni núna.
Sveitarstjórnarkosningar að ári.
Prófkjörsreglum Sjálfstæðisflokksins þarf að breyta, allavega hvað varðar undirbúning kosninga til sveitarstjórna að ári. Í fyrsta skipti í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga vorið 2006 var þessum stífu gildandi reglum fylgt af hálfu Sjálfstæðisfélags Álftaness. Fram að því höfðu prófkjör félagsins verið opin, þ.e. allir stuðningsmenn framboðs félagsins gátu tekið þátt án þess að þeir sem ekki voru skráðir félagsmenn þyrftu að ganga formlega í Sjálfstæðisfélagið.
Í prófkjöri fyrir sveitarstjórnarkosningar vorið 2006 var viðhaft prófkjör. Lítil þátttaka félagsmanna varð m.a. vatn á myllu ,,andstæðinganna.“ Frumstæður Á – listinn varð til fyrir tilstilli fámenns hóps, sem sá sér leik á borði og náði ,,árangri“ með brellum og kjánaskap, sem svo sannarlega er ekki til eftirbreytni. Uppstilling fulltrúa Á – lista á ,,stefnumálum“ í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga vorið 2006 var með miklum ólíkindum, en nógu margir tóku fagurgalann og rausið gott og gilt. Allir sem vilja, sjá að eftirleikur fulltrúa Á – lista er skelfileg staða bæjarsjóðs, sem jafnt og þétt árin 2006, 2007 og 2008 var stefnt á hliðina með óábyrgum hætti. Þegar efnahagshrunið kom síðan ofan í mjög alvarlega stöðu bæjarsjóðs, þá flæddi yfir gleðibikar Á – listans. Lög um sveitarstjórnir gera ekki ráð fyrir slíkri háttsemi með almannafé, sem við Álftnesingar höfum upplifað síðustu þrjú árin í boði fulltrúa Á - lista.
Mjög mikilvægt er að reglum Sjálfstæðisflokksins verði breytt, eða gerð undanþága varðandi Álftanesið. Álftnesingar þurfa að eiga val um hvort viðkomandi sé í Sjálfstæðisfélaginu og/eða Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðisfélagið gæti orðið aðili að bæjarmálahópi? Svo er einn möguleiki enn, að Sjálfstæðisfélagið á Álftanesi verði aðili að víðtæku samstarfi um framboð til sveitarstjórnakosninga að ári?
Við svo erfiðar aðstæður sem blasa við á Álftanesi eftir gjaldþrot Gleðibanka Á – listans, þá dugir ekkert hálfkák. Finna þarf lausnir, sem íbúar geti sameinast um í erfiðri varnarbaráttu vegna stöðu bæjarsjóðs. Þegar ársreikningur 2008 verður loksins gerður opinber, munum við sjá skuldastöðu, sem engan óraði fyrir. Hér hefur Á – listinn verið í ,,svona svolítið 2007“ – allt kjörtímabilið, alveg frá fyrsta degi. Sjá m.a. greinina hér á undan þessari.
Hugmyndir sem ég kynnti í pistli dags. 11. janúar sl. og eru hér á síðunni, þarf að ræða opinskátt, svo sem ég hef hvatt til og án fordóma.
Framtíð Álftnesinga er í húfi. Höfum við annarra hagsmuna að gæta?
Er eitthvað athugavert við það að þeir sem gefa kost á sér í pólitík á landsvísu eða í sveitarstjórnum sýni auðmýkt? Lærum af reynslunni.
Guðmundur
Wednesday, April 29, 2009
Friday, April 24, 2009
Vinstri grænir á Álftanesi - fyrirmynd næstu landsstjórnar?
Allt þetta kjörtímabil hefur rekstrartap bæjarsjóðs Álftaness verið brúað með lántökum. Svo mikið lá á að hefja þurfti niðurrifsstarfsemina strax að loknum kosningum vorið 2006, áður en kjörnir fulltrúa fengu gild kjörbréf sín. Það sannast á því að bæjarstjóri Vinstri grænna lét greiða sér laun fyrir tímabilið frá kjördegi til þess dags að nýr meirihluti tók við.
Strax á árinu 2006 hófst útrás fulltrúa Á – listans, sem bæjarstjóri fór fyrir. Strax í júni árið 2006 var tekið til við takmarkalausa eyðsluna og söfnun skulda og svo áfram árið 2007 og 2008. Fulltrúar D – lista vöruðu ítrekað við óraunhæfum áætlunum fulltrúa Á – lista, fyrst sumarið 2006. Í lok áranna 2006, 2007 var borðleggjandi óráðið, þegar ársreikningarnir voru skoðaðir.
Ótrúleg og sérstök var skýring fyrrverandi forseta bæjarstjórnar Álftaness, þegar hann sagði á bæjarstjórnarfundi að almennt hefðu áætlanir Á – lista staðist, nema tekjuhlutinn! Gjöld á íbúa hækka í sífellu og til að mynda hafa fasteignagjöld hækkað um yfir 51% frá árinu 2006.
,,Ja svona svolítið 2007.”
Bæjarstjórinn og fyrrverandi forseti bæjarstjórnar (í Samfylkingunni) hömuðust við að gera sundlaugarverkefnið sem allra allra dýrast, þeim fannst það einfalt mál, allt væri jú tekið að láni frá Fasteign, en því miður voru leigugreiðslurnar tengdar gengi evrunnar!
Ósköpin sem gerðust á Álftanesi voru þau að strax sumarið 2006 var hafist handa um óreyðuna, þá hófst eyðsla á bæði borð og tekin lán sem aldrei fyrr. Allt gert á grundvelli þess að tekjurnar myndu flæða inn í bæjarsjóð um leið og uppbygging á miðsvæðinu hæfist í ,,Grænum miðbæ” bæjarstjórans.
Eytt var m.a. tugum milljóna í skipulagsvinnu á miðsvæði, m.a. þar af var hárri upphæð eytt í tillögu að menningarhúsi og hóteli. Vinnan og fjárausturinn við skipulag á Skógtjarnarsvæði er kapítuli út af fyrir sig. Þar skyldi afmáð lóðin Miðskógar 8 af deiliskipulagi, en bygging á lóðinni myndi trufla útsýni fyrrverandi forseta bæjarstjórnar. En það var einmitt vegna þessarar lóðar sem forsetinn (í Samfylkingunni) missti sig á hóteli í Reykjavík og sendi þaðan á Internetið undir dulnefni þvílíkan óhróður um eigendur lóðarinnar og fulltrúa Sjálfstæðisfélagsins á Álftanesi að venjulegu fólki var ofboðið. Vegna þessa máls þurfti forsetinn fyrrverandi að segja sig úr bæjarstjórn.
Óráðssíunni er best lýst með því að bera saman skuldastöðu í lok árs 2005, þá um 1000 milljónir, samsvörun við einar árstekjur bæjarsjóðs eða um 470 þúsund á íbúa. Í árslok 2007 voru heildarskuldir og leiguskuldbinding vegna sundlaugar alls um 3100 milljónir, um 1,3 milljón á íbúa. Upplýsingum varðandi ársuppgjör 2008 liggja enn ekki fyrir.
Miðað við árshlutauppgjör í september 2008 (fyrstu níu mánaða), og þróun verðlags síðan, þá eru skuldir bæjarsjóðs komnar í nýjar og áður óþekktar upphæðir. Gera má ráð fyrir að skuldasöfnunin og leiguskuldbinding vegna sundlaugar sé alls vel yfir 5000 milljónir í árslok 2008. Geri aðrir betur. Áætlaðar árstekjur 2009 gætu numið um 900 milljónum (mjög veruleg lækkun frá fyrra ári). Þessi skuldafjárhæð er ekki undir 2,1 milljón á hvern íbúa og heildarskuldir bæjarsjóðs nálgast óðfluga sexfaldar áætlaðar árstekjur 2009!
Rétt er að vekja athygli á því að skuldasöfnunin var orðin yfirgengleg þegar fjármálakreppan skall á okkur og jók enn á vanda bæjarsjóðs. Látlaus og hamslaus útgjöldin árin 2006, 2007 og 2008 voru ástunduð í trausti þess að tekjur á árinu 2008, 2009 og 2010 yrðu verulegar. Er eitthvert vit í þessum vinnubrögðum? Er einhver minnsti snefill af ráðdeild í þessum spilum Á – listans, það sem af er kjörtímabilinu? Er það ekki öllum ljóst að vandræði vegna stöðu bæjarsjóðs eru mjög alvarleg vegna þess hvernig háttsemin hefur verið allt kjörtímabilið, ofan í þau ósköp skellur svo yfir okkur kreppa og nánast kerfishrun á haustdögum. Hér er verið að höndla með almannafé.
Óþarfi er að fara hér ofan í það hvernig í ósköpunum fjármál bæjarsjóðs munu þróast á árinu 2009. Ljóst er að tekjur minnka verulega. Tekjur duga ekki fyrir útgjöldum. Taka þarf lán til að brúa bilið milli tekna og útgjalda, eins og árin 2006, 2007 og 2008. Þar vegur þungt að taka þarf m.a. lán til greiðslu leiguskuldbindinga vegna sundlaugar og stefnir í að svo verði um ókomin ár.
Verði okkur landsmönnum að góðu ef módel Vinstri grænna á Álftanesi í samsuðunni með sundurleitum hópunum í Samfylkingunni verður fyrirmyndin í fjármálaráðuneytinu að alþingiskosningum loknum.
Hugum vel að valmöguleikunum - á kjördegi 25. apríl 2009.
Munum hve atkvæði Álftnesinga voru dýr vorið 2006.
Við fulltrúar D - lista í bæjarstjórn Álftaness höfum óráð Vinstri grænna og fulltrúa Á - lista ,,beint í æð."

Tuesday, April 14, 2009
Vettvangsferðin, skýringar.
Þann 10. apríl sl. setti ég inn orðréttan texta skeytis frá í nóvember sl. varðandi lóðina Miðskógum 8, sem varð þess valdandi að ,,Umræðunni" á heimasíðu Álftaness var lokað þann 20. nóvember sl.
Lóðarhafinn Miðskógum 8 hafði sambandi við mig og óskaði eftir því að ég fjarlægði textann, sem þau varðaði. Ég féllst á rökin og setti inn skýringar (í rauðu letri) í skeytið frá 10. apríl sl.

Friday, April 10, 2009
Vettvangsferð á Grand hótel.
Víð fórum fjórir félagar á dögunum í vettvangsskoðun. Vildum sjá aðstöðuna sem hótelið býður upp á. Nýtt anddyri hótelsins er stórglæsilegt og rétt við gestamóttökuna er tölvuaðstaða sú sem fyrrverandi forseti bæjarstjórnar Álftaness notaði til að senda skeyti þau, sem leiddu til afsagnar hans úr bæjarstjórn. Það vekur auðvitað mikla eftirtekt að maðurinn sem er rafvirki skuli ekki hafa ,,fattað“ að hægt er að rekja sendingar úr tölvum og svo það sem gerði útslagið, öryggismyndavélarnar.
Vegna ítrekaðra spurninga um þessa einkennilegu atburði, þá finnst mér rétt að birta skeytið. En þann 19. nóv. sl. var skeytið sent á bloggsíðu lóðarhafa Miðskógum 8, en fékkst (eðlilega) ekki birt þar. Síðan er skeytið sent daginn eftir, þann 20. nóv. á heimasíðu Álftaness/Umræðan. Sú síða er auðvitað öllum opin, en að kröfu lóðarhafa Miðskógum 8 var skeytið tekið af heimasíðunni innan við fimm tímum eftir að skeytið var sent inn og raunar bætt um betur, ,,Umræðunni“ var lokað.
Tvennar lögregluyfirheyrslur leiddu til afsagnarinnar um miðjan desember sl.
Skeyti orðrétt (athyglisvert netfang):
,,sigurdur01@yahoo.com
Lóðin Álftanesi"
...ATH. Að beiðni lóðarhafa Miðskógum 8 hef ég fjarlægt þann texta í skeytinu (kl. 9.05 14. apríl ´09), sem þau varða. Ég fellst á að textinn er svívirðilegur og rakalaus óhróður um lóðarhafann. Ég skil eftir upphaf og endir skeytisins. Mál þetta er til meðhöndlunar í dómskerfinu. Guðmundur.
,,Ég þekki ekkert til þessa lóðamáls en er viss um að þarna er ekki allt með felldu.
Kæmi ekki á óvart að þau hefðu verið búin að greiða sjálfstæðismönnum einhverjar sporslur fyrir að fá að byggja þarna.
Sigurður“
Svo mörg eru þau orð, sem voru sett á heimasíðu Álftaness (skrifað upp úr ljósriti af útprentun af heimasíðunni).
Svona skrif dæma sig í sjálfu sér sjálf. Þarna vegur rafvirkinn á bæði borð og mannorðsskætingnum eru engin takmörk sett.
Þótti rétt að koma þessu á framfæri vegna ítrekaðrar hvatningar.
Það sem gerst hefur í þessu máli síðan er að lóðarhafar hafa sent Samgönguráðuneytinu stjórnsýslukæru vegna meðferðar fulltrúa Á - listans á byggingarleyfisumsókn og vegna skeytisins. Málið er nú til meðferðar í ráðuneytinu.
Auk þessa tilkynnti rafvirkinn um miðjan mars sl. að hann ætlaði að taka sæti sitt í bæjarstjórn á ný! Því höfnuðu fjórir bæjarfulltrúar Á - listans auk tveggja varamanna bréflega á bæjarstjórnarfundi 2. apríl sl. og sendu bréfið ráðuneytinu til úrskurðar um hvort eðlileg væri málsmeðferðin. Auðvitað er það svo að menn geta ekki gengið úr og í bæjarstjórn að eigin geðþótta, en afbrigði rafvirkjans kom þó fáum á óvart.
Málsmeðferð fulltrúa Á - listans varðandi Miðskóga 8 er vægðarlaus og dæmi um yfirgengilega vitlausa stjórnsýslu. Fulltrúar Á - lista hafa gert sig seka um afdráttarlaus mistök með framferði sínu í þessu máli. Milljónum hefur verið varið af almannafé í að ,,skipuleggja" svæðið við Skógtjörn til að færa í búning þá gjörð að afmá lóðina Miðskógum 8. Auk dýrra málaferla vegna þessa, sem án vafa eiga enn eftir að draga dilk á eftir sér.

Subscribe to:
Posts (Atom)