Friday, April 10, 2009

Vettvangsferð á Grand hótel.

Víð fórum fjórir félagar á dögunum í vettvangsskoðun. Vildum sjá aðstöðuna sem hótelið býður upp á. Nýtt anddyri hótelsins er stórglæsilegt og rétt við gestamóttökuna er tölvuaðstaða sú sem fyrrverandi forseti bæjarstjórnar Álftaness notaði til að senda skeyti þau, sem leiddu til afsagnar hans úr bæjarstjórn. Það vekur auðvitað mikla eftirtekt að maðurinn sem er rafvirki skuli ekki hafa ,,fattað“ að hægt er að rekja sendingar úr tölvum og svo það sem gerði útslagið, öryggismyndavélarnar.
Vegna ítrekaðra spurninga um þessa einkennilegu atburði, þá finnst mér rétt að birta skeytið. En þann 19. nóv. sl. var skeytið sent á bloggsíðu lóðarhafa Miðskógum 8, en fékkst (eðlilega) ekki birt þar. Síðan er skeytið sent daginn eftir, þann 20. nóv. á heimasíðu Álftaness/Umræðan. Sú síða er auðvitað öllum opin, en að kröfu lóðarhafa Miðskógum 8 var skeytið tekið af heimasíðunni innan við fimm tímum eftir að skeytið var sent inn og raunar bætt um betur, ,,Umræðunni“ var lokað.
Tvennar lögregluyfirheyrslur leiddu til afsagnarinnar um miðjan desember sl.
Skeyti orðrétt (athyglisvert netfang):
,,sigurdur01@yahoo.com
Lóðin Álftanesi"

...ATH. Að beiðni lóðarhafa Miðskógum 8 hef ég fjarlægt þann texta í skeytinu (kl. 9.05 14. apríl ´09), sem þau varða. Ég fellst á að textinn er svívirðilegur og rakalaus óhróður um lóðarhafann. Ég skil eftir upphaf og endir skeytisins. Mál þetta er til meðhöndlunar í dómskerfinu. Guðmundur.

,,Ég þekki ekkert til þessa lóðamáls en er viss um að þarna er ekki allt með felldu.
Kæmi ekki á óvart að þau hefðu verið búin að greiða sjálfstæðismönnum einhverjar sporslur fyrir að fá að byggja þarna.
Sigurður“

Svo mörg eru þau orð, sem voru sett á heimasíðu Álftaness (skrifað upp úr ljósriti af útprentun af heimasíðunni).
Svona skrif dæma sig í sjálfu sér sjálf. Þarna vegur rafvirkinn á bæði borð og mannorðsskætingnum eru engin takmörk sett.
Þótti rétt að koma þessu á framfæri vegna ítrekaðrar hvatningar.

Það sem gerst hefur í þessu máli síðan er að lóðarhafar hafa sent Samgönguráðuneytinu stjórnsýslukæru vegna meðferðar fulltrúa Á - listans á byggingarleyfisumsókn og vegna skeytisins. Málið er nú til meðferðar í ráðuneytinu.

Auk þessa tilkynnti rafvirkinn um miðjan mars sl. að hann ætlaði að taka sæti sitt í bæjarstjórn á ný! Því höfnuðu fjórir bæjarfulltrúar Á - listans auk tveggja varamanna bréflega á bæjarstjórnarfundi 2. apríl sl. og sendu bréfið ráðuneytinu til úrskurðar um hvort eðlileg væri málsmeðferðin. Auðvitað er það svo að menn geta ekki gengið úr og í bæjarstjórn að eigin geðþótta, en afbrigði rafvirkjans kom þó fáum á óvart.

Málsmeðferð fulltrúa Á - listans varðandi Miðskóga 8 er vægðarlaus og dæmi um yfirgengilega vitlausa stjórnsýslu. Fulltrúar Á - lista hafa gert sig seka um afdráttarlaus mistök með framferði sínu í þessu máli. Milljónum hefur verið varið af almannafé í að ,,skipuleggja" svæðið við Skógtjörn til að færa í búning þá gjörð að afmá lóðina Miðskógum 8. Auk dýrra málaferla vegna þessa, sem án vafa eiga enn eftir að draga dilk á eftir sér.

Guðmundur

1 comment:

  1. Góðan dag. GGG, Gott hjá þér GGG ,að tala um þetta
    og láta opna SPJALLIÐ,afhverju er þetta lokað ennþá ? vona að þú gangir í það að opna hann STRAXXXX. STOG . X D ,Hvað annað...

    ReplyDelete