Allt þetta kjörtímabil hefur rekstrartap bæjarsjóðs Álftaness verið brúað með lántökum. Svo mikið lá á að hefja þurfti niðurrifsstarfsemina strax að loknum kosningum vorið 2006, áður en kjörnir fulltrúa fengu gild kjörbréf sín. Það sannast á því að bæjarstjóri Vinstri grænna lét greiða sér laun fyrir tímabilið frá kjördegi til þess dags að nýr meirihluti tók við.
Strax á árinu 2006 hófst útrás fulltrúa Á – listans, sem bæjarstjóri fór fyrir. Strax í júni árið 2006 var tekið til við takmarkalausa eyðsluna og söfnun skulda og svo áfram árið 2007 og 2008. Fulltrúar D – lista vöruðu ítrekað við óraunhæfum áætlunum fulltrúa Á – lista, fyrst sumarið 2006. Í lok áranna 2006, 2007 var borðleggjandi óráðið, þegar ársreikningarnir voru skoðaðir.
Ótrúleg og sérstök var skýring fyrrverandi forseta bæjarstjórnar Álftaness, þegar hann sagði á bæjarstjórnarfundi að almennt hefðu áætlanir Á – lista staðist, nema tekjuhlutinn! Gjöld á íbúa hækka í sífellu og til að mynda hafa fasteignagjöld hækkað um yfir 51% frá árinu 2006.
,,Ja svona svolítið 2007.”
Bæjarstjórinn og fyrrverandi forseti bæjarstjórnar (í Samfylkingunni) hömuðust við að gera sundlaugarverkefnið sem allra allra dýrast, þeim fannst það einfalt mál, allt væri jú tekið að láni frá Fasteign, en því miður voru leigugreiðslurnar tengdar gengi evrunnar!
Ósköpin sem gerðust á Álftanesi voru þau að strax sumarið 2006 var hafist handa um óreyðuna, þá hófst eyðsla á bæði borð og tekin lán sem aldrei fyrr. Allt gert á grundvelli þess að tekjurnar myndu flæða inn í bæjarsjóð um leið og uppbygging á miðsvæðinu hæfist í ,,Grænum miðbæ” bæjarstjórans.
Eytt var m.a. tugum milljóna í skipulagsvinnu á miðsvæði, m.a. þar af var hárri upphæð eytt í tillögu að menningarhúsi og hóteli. Vinnan og fjárausturinn við skipulag á Skógtjarnarsvæði er kapítuli út af fyrir sig. Þar skyldi afmáð lóðin Miðskógar 8 af deiliskipulagi, en bygging á lóðinni myndi trufla útsýni fyrrverandi forseta bæjarstjórnar. En það var einmitt vegna þessarar lóðar sem forsetinn (í Samfylkingunni) missti sig á hóteli í Reykjavík og sendi þaðan á Internetið undir dulnefni þvílíkan óhróður um eigendur lóðarinnar og fulltrúa Sjálfstæðisfélagsins á Álftanesi að venjulegu fólki var ofboðið. Vegna þessa máls þurfti forsetinn fyrrverandi að segja sig úr bæjarstjórn.
Óráðssíunni er best lýst með því að bera saman skuldastöðu í lok árs 2005, þá um 1000 milljónir, samsvörun við einar árstekjur bæjarsjóðs eða um 470 þúsund á íbúa. Í árslok 2007 voru heildarskuldir og leiguskuldbinding vegna sundlaugar alls um 3100 milljónir, um 1,3 milljón á íbúa. Upplýsingum varðandi ársuppgjör 2008 liggja enn ekki fyrir.
Miðað við árshlutauppgjör í september 2008 (fyrstu níu mánaða), og þróun verðlags síðan, þá eru skuldir bæjarsjóðs komnar í nýjar og áður óþekktar upphæðir. Gera má ráð fyrir að skuldasöfnunin og leiguskuldbinding vegna sundlaugar sé alls vel yfir 5000 milljónir í árslok 2008. Geri aðrir betur. Áætlaðar árstekjur 2009 gætu numið um 900 milljónum (mjög veruleg lækkun frá fyrra ári). Þessi skuldafjárhæð er ekki undir 2,1 milljón á hvern íbúa og heildarskuldir bæjarsjóðs nálgast óðfluga sexfaldar áætlaðar árstekjur 2009!
Rétt er að vekja athygli á því að skuldasöfnunin var orðin yfirgengleg þegar fjármálakreppan skall á okkur og jók enn á vanda bæjarsjóðs. Látlaus og hamslaus útgjöldin árin 2006, 2007 og 2008 voru ástunduð í trausti þess að tekjur á árinu 2008, 2009 og 2010 yrðu verulegar. Er eitthvert vit í þessum vinnubrögðum? Er einhver minnsti snefill af ráðdeild í þessum spilum Á – listans, það sem af er kjörtímabilinu? Er það ekki öllum ljóst að vandræði vegna stöðu bæjarsjóðs eru mjög alvarleg vegna þess hvernig háttsemin hefur verið allt kjörtímabilið, ofan í þau ósköp skellur svo yfir okkur kreppa og nánast kerfishrun á haustdögum. Hér er verið að höndla með almannafé.
Óþarfi er að fara hér ofan í það hvernig í ósköpunum fjármál bæjarsjóðs munu þróast á árinu 2009. Ljóst er að tekjur minnka verulega. Tekjur duga ekki fyrir útgjöldum. Taka þarf lán til að brúa bilið milli tekna og útgjalda, eins og árin 2006, 2007 og 2008. Þar vegur þungt að taka þarf m.a. lán til greiðslu leiguskuldbindinga vegna sundlaugar og stefnir í að svo verði um ókomin ár.
Verði okkur landsmönnum að góðu ef módel Vinstri grænna á Álftanesi í samsuðunni með sundurleitum hópunum í Samfylkingunni verður fyrirmyndin í fjármálaráðuneytinu að alþingiskosningum loknum.
Hugum vel að valmöguleikunum - á kjördegi 25. apríl 2009.
Munum hve atkvæði Álftnesinga voru dýr vorið 2006.
Við fulltrúar D - lista í bæjarstjórn Álftaness höfum óráð Vinstri grænna og fulltrúa Á - lista ,,beint í æð."
Guðmundur
Friday, April 24, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment