Svo sem ég hef sagt frá hér á síðunni stefna skuldir bæjarsjóðs Álftaness í áður óþekktar upphæðir. Skuldir alls og leiguskuldbindingar til Fasteign vegna sundlaugar og íþróttahúss um síðustu áramót eru vart undir 5 milljörðum! Það er rosaleg breyting samanborið við skuldir bæjarsjóðs í árslok 2005, þá um kr. 950 milljónir.
Þetta eru skelfileg tíðindi. Athuga ber að raunin er sú að ársreikningi 2008 hefur verið alfarið haldið frá bæjarfulltrúum. Það hafa fulltrúar D – lista gagnrýnt harðlega.
Vafalaust er meining bæjarstjóra sú að ársreikningur 2008 verði ekki ræddur í bæjarráði eða bæjarstjórn fyrr en eftir að sundlaugin nýja hefur verið opnuð. Vafalaust finnst honum ekki ,,sniðugt“ að umræða um stöðu bæjarsjóðs um síðustu áramót skyggi á ,,fagnaðarlæti“ fulltrúa Á – lista vegna sundlaugarinnar.
Ef Gleðibanki Á – listans hefði ekki verið opnaður upp á gátt, strax sumarið 2006 og ef ekki hefði verið óráðlega og ógætilega farið með fé almennings á Álftanesi allt fram til síðasta hausts, þá hefði skellur bæjarsjóðs ekki orðið eins þungbær vegna fjármálakreppunnar og raun ber vitni.
Úr bókun fulltrúar D – lista í bæjarstjórn 28. ágúst 2006, þegar umræða um slit Á – lista á samningi við Eir um uppbyggingu fyrir bæjarfélagið og einkum eldri íbúa:
,,Reyndar er það svo að margar gjörðir Á lista frá kjördegi í maí sl. virðast miða að því að leggja fjárhag bæjarfélagsins í rúst á sem skemmstum tíma, svo hart er keyrt. Fulltrúar D lista frábiðja sér slík vinnubrögð sem þessi og lýsa fullri ábyrgð á hendur fulltrúum Á lista.“
Fulltrúar D – lista hafa marg ítrekað þá skoðun sína að fjárhag bæjarfélagsins hafi verið stefnt í stórhættu með draumsýnum fulltrúa Á – lista, sbr. gjörðir þeirra seinni hluta árs 2006 og fjárhagsáætlanir 2007 og 2008.
Álftaness er nú meðal verst staddra sveitarfélaga landsins. Nú innan fárra daga, þ.e. þegar sundlaugin hefur verið opnuð, mun óhjákvæmilega verða gerður opinber ársreikningur 2008. Þá verður á borðinu hver raunveruleg staðan er orðið. Þá gæti einhverjum orðið ómótt.
Guðmundur
Tuesday, May 19, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment