Friday, August 7, 2009

Framkvæmdir á miðsvæði, dapur dagur.

Svo sem ég kynnti með bréfi til íbúa í Suðurtúni dags. 16. júlí sl. (bréfið er hér á síðunni), þá eru nú hafnar í dag framkvæmdir við nýjan Skólaveg sunnan við Suðurtúnið. Leggja á veg meðfram íbúðahverfinu við Suðurtún og Skólatún og að skólasvæðinu. Í leiðinni verður grafinn í burtu stór hluti skólaleiksvæðisins, sem unnið var skv. útboði á árinu 2005 og kostaði öll framkvæmdin þá um 40 milljónir. Þarna hefur verið vinsælt leiksvæði skólabarnanna.

Það voru meira en helmingur þeirra sem kusu vorið 2006, sem mótmæltu nýju skipulagi miðsvæðisins í janúar 2008 og þá sérstaklega þessum nýja vegi og að grafa eigi í burtu stóran hluta Breiðumýrar.

Athygli vakti að hver einasti skráður íbúi í Suðurtúni skrifaði undir mótmæli í janúar 2008 við því að þessi nýji vegur yrði á skipulagi sunnan Suðurtúns.

Þetta brölt er því miður í óþökk meginþorra Álftnesinga og er troðið í gegn um bæjarstjórn af bæjarstjóra á afar lélegum forsendum, svo ekki sé meira sagt.

Ég hef nýverið lýst hér á síðunni tilburðunum varðandi samninga við Búmenn og Ris ehf.

Guðmundur

1 comment:

  1. Hvað er að Bæ Bæ jarstjóra það vantar eitthvað þarna þetta gengur ekki ,eða er það?

    ReplyDelete