Thursday, August 6, 2009

Ice shave Álftnesinga

Á fundi bæjarráðs Álftaness í gær var á dagskrá að minni beiðni staða í bæjarstjórn eftir óvenjulega atburðarrás frá 24. júlí sl. svo sem fram kemur hér á síðunni.

Á fundinum lagði ég fram þessa bókun:
,,Óska eftir því að upplýst sé nú á fundinum hver staða bæjarfulltrúa Á – lista og fyrrum bæjarfulltrúa Á – lista er. Því hefur verið lýst yfir að ekki sé lengur meirihluti Á – lista í bæjarstjórn. Uppnám er í bæjarstjórn vegna þess að bæjarfulltrúar Á – lista og áður bæjarfulltrúar Á – lista höfnuðu samstarfi við Kristján Sveinbjörnsson, eftir að úrskurður ráðuneytis lá fyrir um endurkomu hans. Formaður bæjarráðs hefur skv. yfirlýsingu dags. 27. júlí sl. sagt sig af Á – listanum, hafnað samstarfi við Kristján og gagnrýnt bæjarstjóra vegna vinnubragða, framkomu og ýmsa málsmeðferð á vettvangi meirihluta. Ljóst virðist að meirihluti bæjarfulltrúa vilji að bæjarstjóri víki. Það er óþolandi að bæjarstjóri haldi bæjarstjórn í gíslingu, þar sem fjóra þarf til boðunar aukafundar bæjarstjórnar eða að bæjarstjóri boði slíkan fund. Óska eftir að yfirlýsing formanns bæjarráðs sé bókuð í fundargerðina.”

Svar fulltrúa Á – lista og nú óháðs formanns bæjarráðs var á þá leið unnið væri að endurnýjun samstarfssamnings, enginn væri málefnaágreiningurinn og að bæjarstjóri starfi í umboði þeirra sem kjörnir voru af Á – lista. Formaður lét ekki eftir mér að bóka yfirlýsinguna í fundargerðina.

Ja há. Samstarfssamning Á – lista hef ég ekki heyrt um fyrr, þau tala nú eins og að um hafi verið að ræða kosningabandalag. Athyglisvert er að þessir fjórir fulltrúar hafa ekki enn náð lendingu eftir allan hamaganginn og innbirðis brigslyrði þeirra. Svo langt gekk bæjarstjórinn í að reyna að gera fulltrúa D – lista samábyrga fjárhagssukki hans, að hann var tilbúinn að fórna öllu til, meira að segja félögum sínum. Það gekk bara ekki upp og nú er ólmast í því að ,,berja í brestina.“ Hver niðurstaðan verður, veit enginn.

En er verjandi að bjóða Álftnesingum upp á svona trakteringar?

Ég hef áður líkt hamagangi bæjarstjórans við útrás hér á síðunni í eftirlitslausu skjóli hinna bæjarfulltrúanna Á – listans. Þessi útrás hans er engu betri en bjálæðislegir fjárglæfrar útrásarinnar, sem smátt og smátt er verið að upplýsa þjóðina um síðustu vikur. Auðvitað í minni skala hér, enda bæjarsjóður með takmarkað þol í milljörðum talið. Þó hefur tekist að koma skuldum og leiguskuldbindingum nálægt 6 milljörðum eða meira en sexfaldar árstekjur, miðað við síðustu samþykktir bæjarstjórnar og bæjarráðs. Það var strax 2006 hafist handa við innistæðulausar samþykktirnar, svo sem 33% lækkun leikskólagjalda, heimgreiðslur til foreldra ungra barna, skólamáltíðir greiddar niður langt umfram eðlileg mörk. Fasteignagjöld voru hækkuð á tveimur árum um 52%, unnið var nýtt deiliskipulag miðsvæðis fyrir tæpar 60 milljónir, þar af um 10 milljónir í forhönnun menningarhúss og hótels. Innborgun kr. 400 milljónir vegna sölu íþróttahússins til Fasteign hf var eytt, nema 50 milljónum, sem fór til niðurgreiðslu skulda. Þrátt fyrir tal bæjarstjóra um að öll upphæðin færi til greiðslu skulda bæjarsjóðs. Samningar um kaup á landi voru gerðir, sem m.a. að hluta gengu til baka vegna vanefnda. Loforð um stórkostleg uppkaup lands voru gefin, sem síðan tóks ekki að efna. Viljayfirlýsingar um kaup á landi hrönnuðust upp. Eyðslan var í algleymi á árunum 2006, 2007 og 2008, en um haustið féll spilaborgin og þá í október 2008 virtist það koma bæjarstjóra í opna skjöldu að illa hafi farið.

Allan tímann fram að þessu var þó sagt, þetta er ekkert mál, milljarðarnir munu flæða í bæjarsjóð á árunum 2007, 2008 og 2009, bara ártalinu seinkað eftir því sem við átti.

Engir komu nú milljarðarnir, en ársreikningur 2007 sýnir best hve bratt var keyrt og þrátt fyrir alvarlegar athugasemdir og viðvaranir fulltrúa D – lista, var áframt keyrt með bros á vor um víðáttubreiðar gleðinnar dyr Á – listans.

Það er nú bara einfaldlega þannig að hagsveiflur á Íslandi hafa verið því miður viðvarandi vandamál á vissra ára fresti. Staða bæjarsjóðs um áramótin 2007/2008 var hrikalega slæm og þegar fjármálakreppa kom ofan í allt óráðið, var ekki við neitt ráðið. En enn er bætt í og gerðir nú í maí til júlí sjö samningar við Ris ehf. m.a. um uppbyggingu á miðsvæðinu, gatnagerð, kaup á landi í þeirra eigu, sala á byggingarrétti á miðsvæðinu, leigusamningur um húsnæði á miðsvæðinu, uppbyggingu á vegum Búmanna vegna bráðabirgðaaðstöðu fyrir skrifstofur bæjarfélagsins og rúsínan í pylsuendanum og sjöundi samningurinn er krafa frá viðskiptabanka Búmanna, Álftaness og Ris um að Ris stofni nýja kennitölu vegna verkefnis Búmanna á Álftanesi, vegna framkvæmdaláns til verkefnisins.

Vesenið í þessum samningum er aðallega það að tekjur í bæjarsjóð eru búnar til með sölu byggingarréttar, t.d. Búmenn 330 milljónir, sem síðan eru leigðar til baka í húsnæði. Þannig myndast tekur í bæjarsjóð á árinu 2009 og því lagar þessi sjónhverfing bæjarsjóð árið 2009, enda er það megin tilgangurinn. Það sem síðan gerist er að smátt og smátt koma til skjalana áhrif leigusamninganna á árunum 2011 til 2012, sem sagt vandanum er frestað og viðtakandi bæjarstjórn situr uppi með hrikalegt vandamál sem búið hefur verið til.

Vá maður – myndi nú vafalaust einhver segja.

Álftnesingar sitja uppi með það sem ég vil kalla Ice shave, mætti útleggjast ,,krúnurakaðir“ með skýrskotun til stóra klúðurssamningsins, sem alþingi er að glíma við þessa dagana. Sem sagt því miður eitt stórbrotið klúður, það sem af er kjörtímabilinu í boði þeirra fulltrúa, sem kjörnir voru af Á – lista til ábyrgðar í bæjarstjórn Álftaness í lok maí 2006. En þessir fjórir fulltrúar kjörnir af Á – lista eru nú í þrennu lagi – 2 + 1+ 1 !!!

Ég flutti þessa tillögu á fundi bæjarráðs í morgun:
,,Bæjarráð samþykkir að unnið verði endurskoðað uppgjör janúar til júní 2009. Lagt verði mat á viðbótarskuldbindingar skv. samningum og samþykktum bæjarstjórnar og bæjarráðs frá júní til júlí, ásamt mati á samþykktum viljayfirlýsingum á kjörtímabilinu, skoðun á skuldastöðu og leiguskuldbindingum. Skoðuð verði m.a. áhrif mögulegrar skaðabótagreiðslu vegna Miðskóga 8 og mögulegrar sáttagjörðar vegna dómsmáls eigenda Akrakots. Lagt verði mat á hæfi bæjarsjóðs til greiðslu allra skulda og leiguskuldbindinga og hve mörg ár það taki bæjarsjóð að greiða að fullu. Að gefnum eðlilegum forsendum tekna og þróunar rekstrarkostnaðar að mati endurskoðenda. Uppgjörið verði tilbúið á fyrsta fundi bæjarráðs í september.”

Ekki treysti fulltrúi Á – lista og óháður formaður bæjarráðs sér til þess að taka afstöðu með eða á móti því afgreiðslu tillögunnar var frestað, en þær bókuðu að það gæti verið sniðugt að vinna að uppgjöri með sem minnstum tilkostnaði.

Guðmundur

No comments:

Post a Comment