Á heimasíðunni alftanes.is er á forsíðu, sem frétt, yfirlýsing fulltrúa Á - lista og fyrrverandi fulltrúa Á - lista. Einhver bæjarfulltrúi þeirra hefur beðið um að yfirlýsing þessi væri sett á heimasíðuna. Í leiðinni hefði verið eðlilegt að bókun mín á fundinum kæmi fram líka við þetta tækifæri, þar sem ég var málshefjandi. Ég hef beðið bæjarstjóra um að setja mína bókun á heimasíðuna einnig, en ekki fengið svar enn við beiðninni.
Þetta er dæmigerð misnotkun fulltrúa Á - lista og fyrrverandi fulltrúa Á - lista, sem hefur einkennt heimasíðuna allt þetta kjörtímabil. Enda eru mýmörg dæmi um þessa misnotkun þeirra, til þess að slá ryki í augu íbúa, með einlitum ,,fréttum." Frægust er misnotkun þáverandi forseta bæjarstjórnar á síðunni þann 20. nóvember sl. þegar hann setti ruglið um lóðina Miðskógum 8 og eigendur hennar á síðuna undir nafninu Sigurður, með netfangið: sigurdurone@yahoo.com !!
Það athyglisverða er að yfirlýsingin þeirra í bæjarráði segir ekki neitt annað en að allt sé upp í loft og síðan er nefnt til sögunnar verið sé að endurnýja ,,samstarfssamning" þeirra. En slíkt plagg hefur þetta svokallaða óflokksbundna framboð aldrei kynnt.En umfram allt er tekið fram að bæjarstjóri starfi á ábyrð þeirra fjögurra!
Það rétta er að ég óskaði eftir því með tölvuskeyti tímanlega fyrir fundinn að í upphafi bæjarráðsfundarins yrðu rædd fundarsköp og staða í bæjarstjórn í ljósi atburða 24 til 29. júlí sl.
Reyndar var það svona frekar tilgangslítið að ræða þessa fáránlegu stöðu í bæjarstjórn á bæjarráðsfundinum, þar sem höfuðpaurinn í öllu ruglinu bæjarstjórinn var ekki á fundinum, hann var í fjallgöngu með Kristjáni Sveinbjörnssyni og fleirum. En Kristjáni afneitaði bæjarstjórinn ,,svo snyrtilega" helgina 24. til 26. júlí sl. Það gerði reyndar formaður bæjarráðs einnig með einstakri yfirlýsingu sinni að kvöldi 27. ágúst sl.
Það er óskaplega margt skrýtið í kýrhausnum.
Þessi er bókun mín á bæjarráðsfundinum:
Bókun fulltrúa D – lista:
,,Óska eftir því að upplýst sé nú á fundinum hver staða bæjarfulltrúa Á – lista og fyrrum bæjarfulltrúa Á – lista er. Því hefur verið lýst yfir að ekki sé lengur meirihluti Á – lista í bæjarstjórn. Uppnám er í bæjarstjórn vegna þess að bæjarfulltrúar Á – lista og áður bæjarfulltrúar Á – lista höfnuðu samstarfi við Kristján Sveinbjörnsson, eftir að úrskurður ráðuneytis lá fyrir um endurkomu hans. Formaður bæjarráðs hefur skv. yfirlýsingu dags. 27. júlí sl. sagt sig af Á – listanum, hafnað samstarfi við Kristján og gagnrýnt bæjarstjóra vegna vinnubragða, framkomu og ýmsa málsmeðferð á vettvangi meirihluta. Ljóst virðist að meirihluti bæjarfulltrúa vilji að bæjarstjóri víki. Það er óþolandi að bæjarstjóri haldi bæjarstjórn í gíslingu, þar sem fjóra þarf til boðunar aukafundar bæjarstjórnar eða að bæjarstjóri boði slíkan fund. Óska eftir að yfirlýsing formanns bæjarráðs sé bókuð í fundargerðina.”
Guðmundur
Wednesday, August 12, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment