Friday, January 15, 2010

Í aðdraganda þorrablótsins

Þorrablótið verður haldið laugardaginn 23. janúar nk. Að undirbúningi þess vinna orkuboltar frá Kvenfélaginu og Lionsklúbbnum. Ég veit að enn er hægt að nálgast miða á blótið.

Í Morgunblaðinu í dag er skondin tilkynning frá ,,Bæjarmálaráði Á - listans" um að þegar skuli hafinn undirbúningur að framboði Á - listans vegna sveitarstjórnakosninga í vor. Þar eru þrír einstaklingar nefndir á nafn og athygli vekur að fyrrverandi forseti bæjarstjórnar er ekki nefndur til sögunnar, enda fær hann bara að vera með, þegar hentar hverju sinni. Einnig er það athyglisvert að þessi hópur, sem telur 5 til 6 manns skuli láta sér detta í hug slíka vitleysu sem þessa. Þvílík firring. Þeir sem nefndir eru til sögunnar í tilkynningunni bera þyngsta ábyrgð bæjarfulltrúa á Álftanesi á allra mesta skandal í sögu sveitarfélaga á Íslandi og meðferð á almannafé, gjaldþroti heils bæjarfélags.

Já segja má að firringin sé alger og einkum hjá fyrrverandi bæjarstjóra, sem er jú hugmyndafræðingurinn í hrunadansi Á - listans, með augljósum erfiðum afleiðingum fyrir Álftnesinga. Að hugsa sér slíka framkvæmdastjórn á einungis um þremur árum. Raunar komu fyrstu einkenni hruns Álftaness fram strax sumarið 2006, þegar teknar voru magnaðar innistæðulausar ákvarðanir í bæjarstjórn og tengdar við kosningaloforð Á - listans! Þá var Gleðibanki Á - listans opnaður, að hætti útrásavíkinganna, sem stálu íslensku bönkunum.

Ég nefndi þorrablótið í upphafi og tel víst að með einum eða öðrum hætti sé þessi tilkynning gerð með aðdraganda þorrablótsins í huga, enda er það þekkt í gegn um árin að sveitarstjórnin hverju sinni fær tiltekinn skammt af pillum í skemmtiatriðum.

Ætla má að þessi tilkynning sé sett í Moggann til þess að magna spennuna fyrir blótið, svo mikið grín sem þessi einstaka tilkynning ber augljóslega með sér.

Athygli vekur að ekki fer mikið fyrir umfjöllun í fjölmiðlum af þátttöku í undirbúningi framboðs Sjálfstæðisfélagsins vegna sveitarstjórnarkosninganna, þar eiga þó nokkru fleiri hlut að máli en hjá Á - lista, sem rúin er trausti. Frestur til að skila framboðum í ætlað prófkjör Sjálfstæðisfélagsins rann út um síðastliðna helgi. Þar komu 12 nöfn upp úr hattinum og stefnir í spennandi prófkjör við afar erfiðar aðstæður á Álftanesi og næsta víst að ekki er kosið til heils kjörtímabils að þessu sinni.

Guðmundur

No comments:

Post a Comment