Friday, January 30, 2009

Beðið eftir Ingibjörgu.

Stjórn Sjálfstæðisfélags Álftaness hélt félagsfund 21. janúar sl. kl. átta. Tilefni fundarins var ósk fundarmanna á aðalfundi félagsins í nóvember sl. að haldinn væri fundur fyrir Landsfund Sjálfstæðisflokksins um ESB. Í dagskrá fundarins var gert ráð fyrir að menntamálaráðherra og þrír þingmenn að auki myndu mæta á fundinn, hvorki meira né minna. Einn þingmanna féll úr skaftinu. Í upphafi fundar flutti ég örstutt erindi um málefni Álftaness, sem eftir á að hyggja átti ekki erindi á fundinn. Gestirnir þrír fluttu erindi um stöðu efnahagsmála og ESB. Þegar framsögu gestanna lauk um kl. tíu voru leyfðar fyrirspurnir frá fjölmennum hópi sem sóttu fundinn. Nokkuð var af fundarmönnum dregið eftir tveggja tíma framsögur og voru ekki margir, sem treystu sér í spurningar eða athugasemdir. Athugasemdir úr sal voru beittar og gætti reiði, af eðlilegum ástæðum. Fundinum lauk um kl. 10.30. Engin skýring var gefin á því af hverju gert var ráð fyrir ,,önnur mál“ í fundarboðinu, enda ekki tekið á dagskrá fundarins.
Hafi það hins vegar verið meiningin að ræða undir liðnum ,,önnur mál“ tillögu sem ég kynnti í grein 11. janúar sl. (greinin er hér á síðunni), þá hefði nú tæplega gengið að halda úti félagsfundi í allt að þrjá klukkutíma eða meira. Ég heyrði á nokkrum fundarmanna eftir fundinn, að þau höfðu komið á fundinn vegna þess að þau héldu að ræða ætti tillögu mína í greininni 11. janúar sl. og að þau vildu styðja tillöguna um val. Mér þótti það í sjálfu sér athyglisvert, en benti á að þá hefði fundarboðið væntanlega verið með öðrum hætti.
Fyrirsögnin ,,Beðið eftir Ingibjörgu“ finnst mér að gæti verið grafskrift fráfarandi ríkisstjórnar, vegna þess að á félagsfundinum kom ítrekað fram hjá ráðherra og þingmönnum að beðið væri eftir Ingibjörgu Sólrúnu til þess að hægt væri að taka á erfiðum úrlausnarmálum ríkisstjórnarinnar, sem hafi verið tilbúnar í desember! Eftir á að hyggja – þá hefði kannski verið sniðugt að bíða ekki svona lengi?
Guðmundur

No comments:

Post a Comment