Friday, January 23, 2009

Fyrsta bloggið.

Nú hef ég afráðið að opna bloggsíðu, en á síðunni mun ég birta hugrenningar mínar, sem í flestu munu snúast um málefni Álftaness. Allt frá árinu 2006 hef ég skrifað greinar á alftanes.xd.is, sem er heimasíða Sjálfstæðisfélags Álftaness og er þar að finna nokkuð margar greinar um málefni Álftnesinga. Síðustu tvær greinarnar mínar voru settar á þá heimasíðu um síðustu áramót og svo síðast 11. janúar sl.

Greinin 11. janúar fékk miklu meiri viðbrögð en ég hefði nokkurn tíma órað fyrir og var greinin sett á amx.is og eyjan.is og var nokkuð um að send voru álit þeirra sem lásu.

Lokaorð greinarinnar 11. janúar voru um tillögu þess efnis að einstaklingar, sem væru félagar í Sjálfstæðisfélagi Álftaness hefðu um það val að vera jafnframt í Sjálfstæðisflokknum.

Læt ég hér staðar numið í ,,fyrsta blogginu" mínu - þar sem ég hef einungis við eigin samvisku að glíma, þegar kemur að frekari skrifum um álitaefni á Álftanesi og jafnvel að einhverju leiti skrif um dægurmál.

Guðmundur

No comments:

Post a Comment