Það er algerlega með ólíkindum ruglið sem bæjarfulltrúar Á - lista setja saman í grein í Mogga í dag. Þar kemur m.a. fram að enn efast þau um niðurstöðu Hæstaréttar um að lóðin Miðskógar 8 sé byggingarlóð. Spillingin og hagsmunapotið í þessu máli er svakalegt. Auk þess er verið að höndla með almannafé íbúa Álftanes! Ábyrgð þessara greinarhöfunda er mikil.
Og stjórnsýslan - maður lifandi.
En hvað með þennan fráfarandi? Eigandann á nr. 6? Hann labbar bara út úr bæjarstjórn, að því er virðist án þess að nokkurn tíma þurfi að koma til þess að hann þurfi að axla ábyrgð á sínum axarsköftum. Eða hvað? Hann var hirtur í öryggismyndavélum á hóteli í Reykjavík, þar sem hann sat tvo daga í röð og skrifaði pistil með einhverju dæmalausu níðrugli um eigendur lóðarinnar Miðskógum 8 og bæjarfulltrúa Sjálfstæðisfélagsins, sem hann setti á heimasíðu bæjarfélagsins, ,,umræðuna" 20. nóvember sl. Síðunni var lokað í kjölfarið, að kröfu lögmanns lóðarhafanna! Það var hins vegar ekki fyrr en eftir tvær yfirheyrslur hjá lögreglunni, þá siðari 15. desember sl. að sá nr. 6 sagði af sér sem bæjarfulltrúi. Hann reyndi að strögla sem lengst, því að hann hélt virkilega að hann kæmist upp með plottið.
En bíðum nú við, hann sagði sig frá bæjarstjórn að kröfu bæjarstjóra! Mælistika siðgæðis í Á -listanum er afar sérkennileg. Bæjarstjórinn var nefnilega dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í október 2007 til greiðslu launa sem hann hafði ekki ætlað sér að greiða nokkurn tíma, manni sem hann hafði í vinnu við fyrirtæki í hans eigu. Svo getur hann leyft sér að skutla hinum spillingarstjóranum fyrir borð!
Niðurlag greinarinnar í Mogga í dag er algerlega sér á parti og aðdróttanir í garð bæjarfulltrúa Sjálfstæðisfélagsins, einkum í minn garð eru algerlega einstakar, fráleitar, ósmekklegar og með öllu órökstuddar.
Guðmundur
Friday, January 30, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment