Wednesday, February 4, 2009

Búmenn á Álftanesi.

Á fundi bæjarstjórnar 29. janúar sl. dúkkaði upp án fyrirvara og án þess að getið væri í fundarboði tilkynning frá bæjarstjóra um að Búmenn hefðu upp á vasann 750 milljón króna lánsloforð Íbúðalánasjóðs vegna byggingar Búmanna á 10 íbúðum fyrir eldri íbúa og þjónustumiðstöð á miðsvæðinu. En þessa ,,þjónustumiðstöð“ ætla Búmenn að leigja bæjarfélaginu fyrir skrifstofur í einhver ár, en ekki til afnota fyrir eldri íbúa Álftaness. Ekki hef ég vitneskju um að Íbúðalánasjóður hafi áður gefið lánsloforð til slíkra hluta, séu þessar upplýsingar réttar yfirhöfuð. Á fundi bæjarráðs 22. janúar var ekki nefnt einu orði að þessara tíðinda væri að vænta.

Þessi vinnubrögð eru svo sem í takt við annað í stjórnsýslu Álftaness. Sýnist mönnum almennt að það séu að hefjast framkvæmdir á miðsvæði Álftaness skv. ólíkindaskipulagi svæðisins? Búið er að halda fjölmarga fundi vegna ,,hönnunar“ mannvirkis þessa, sem byggja á loðnu orðalagi viljayfirlýsingar gagnvart Búmönnum. Engir samningar liggja fyrir gagnvart Búmönnum um eitt eða neitt. Svo virðist sem menn hafi aðeins tapað sér í hamaganginum. Uppbygging þessa mannvirkis virðist að mestu leiti byggður á grunni samnings sem var gerður við Eir árið 2005 um uppbyggingu fyrir eldri íbúa. Fulltrúar Á – lista eyðilögðu þann samning.

Eir gerði ekki ráð fyrir fjármögnun frá Íbúðalánasjóði vegna framkvæmdanna, sem ætlað var að yrðu skv. samningnum frá 2005. Enda lánar Íbúðalánasjóður ekki til framkvæmda, skv. hugmyndum sem nú eru uppi á borðum gagnvart Búmönnum á miðsvæði Álftaness. Það ku vera vegna lagafyrirmæla. Hvað hins vegar veldur því að bæjarstjóri heldur því fram að lánsloforð liggi fyrir frá Íbúðalánasjóði til Búmanna nú, veit ég ekki. Engin staðfesting vegna ætlaðs lánsloforðs hefur verið sýnd bæjarfulltrúum. Eðlilega var okkur bæjarfulltrúum Sjálfstæðisfélagsins nokkuð brugðið við þessa tilkynningu bæjarstjóra, þar sem málið er nú ekki alveg svona einfalt, svo sem tilvitnuð bókun á fundinum ber með sér. Engir samningar liggja fyrir um eitt eða neitt gagnvart Búmönnum. Er þetta ekki pínulítið sérstakt?

Eftirfarandi er úr fundargerð bæjarstjórnar 29. janúar sl. við umræðu um fundargerð bæjarráðs frá 22. janúar. Sá liður heitir Miðsvæði – staða mála.
Tilkynning bæjarstjóra og bókun fulltrúa Sjálfstæðisfélagsins af þessu tilefni:

,,Bæjarstjóri upplýsti að stjórn Íbúðalánasjóðs hefði í síðustu viku samþykkt lánveitingar til Búmanna upp á 750 milljónir, til fyrsta áfanga framkvæmda á miðsvæði Álftaness, þ.e.a.s. til fyrstu 10 íbúða og þjónustumiðstöðvar. Áformað er að þessar framkvæmdir geti hafist í sumar og því þurfi að semja sem fyrst um vegaframkvæmdir.
Bæjarstjóri ræddi tillögu frá bæjarfulltrúum Á - lista sem kynnt var í bæjarráði fyrir áramót um heimild til hans að leita óhefðbundinna samninga um framkvæmdir á miðsvæðinu ef slíkt væri hagkvæmt fyrir sveitarfélagið.“

Bókun fulltrúa Sjálfstæðisfélagsins:
,,Ekki liggja fyrir samningar bæjarfélagsins við Búmenn um afnot og nýtingu húsnæðis, sem ætlað er að Búmenn byggi. Ekkert liggur fyrir um leiguverð til bæjarfélagsins og ætlaðra íbúa. Ekki liggur fyrirframkvæmdaáætlun eða rekstraráætlun fyrir mannvirkið. Hver verður fjárhagsleg skuldbinding bæjarsjóðs vegna verkefnisins m.a. vegna gatnagerðar, nú þegar ljóst er að bæjarsjóður er þegar alvarlega skuldsettur? Við óskum eftir efnislegum og fjárhagslegum samanburði við samning við Eir frá árinu 2005, sem fulltrúar Á – lista lögðu sig fram um að eyðileggja."

Guðmundur

No comments:

Post a Comment