Saturday, February 28, 2009

Fasteignagjöld hafa hækkað um 52%!

Það fór hrollur um marga Álftnesinga í vikunni, þegar fasteignagjaldaálagningin og fyrsti greiðsluseðilinn af átt komu inn um bréfalúguna. Að hugsa sér, við þurfum að hafa greiðsluseðla fasteignagjaldanna í höndunum lungað úr árinu og það engin smá upphæð, í mínu tilefelli kr. 29.500 á mánuði í átta mánuði – mars til október.
Fasteignagjöldin hafa hækkað um 51,84% á tveimur árum!

Dæmi: Einbýlishús, íbúð 145,1 m² og bílskúr 52,2 m²

Fasteignagjöldin og samanburður milli ára:




Að hugsa sér ósköpin og ekki síst miðað við aðstæður nú um stundir. Árið 2006 voru sex gjalddagar en strax árið 2007, þegar Á – listinn valdi leiðina var hækkunin svo hressileg að nam upphæð tveggja gjalddaga, enda var greiðslutímabilið lengt í átta mánuði.
Ég minnist þess hve illa fulltrúar Á – lista létu á síðasta kjörtímabili, þegar fasteignamat hækkaði mjög verulega og ljóst var að fasteignagjöldin myndu hækka sem því næmi. Álagningarhlutfall fasteignaskatts var lækkað þá og þar með dregið úr hækkun fasteignagjaldanna. En hjálpi mér hamingjan, nú er aldeilis tekið á því og gagnrýni er tilgangslaus, svo sem afgreiðsla tillögu fulltrúa D – lista ber með sér á síðasta fundi bæjarstjórnar.
Guðmundur

No comments:

Post a Comment