Wednesday, February 4, 2009

Hæsta mannvirkið á Álftanesi.

Nú er verið að reisa hæsta mannvirki á Álftanesi, rennibraut við sundlaugina. Rennibrautin mun gnæfa yfir nesið og yfir íþróttahúsið og nálæg íbúðarhús. Rennibrautin mun sjást víða að. Það er sérkennilegt að rifja upp hamaganginn, sem bæjarfulltrúar Á - listans stóðu fyrir á árinu 2005 og fram að kosningum vorið 2006. Þegar nefnd voru þá að sum húsin yrðu ca. 10 metra há á svæðinu, svimaði og sundlaði liðinu og leið afar illa yfir ,,stórkostlegri hæð sumra húsanna" á þá ætluðu deiliskipulagi. M.a. var gripið til þess ráðs af þessu fólki að setja upp skilti við afleggjarann að Bessastöðum. Á skiltinu stóð - SKIPULAGSSLYS.
Einu sinni var hart tekist á um sjálft íþróttahúsið, þ.e. hæð þess. Þá sagði mætur maður, sem bjó á nesinu að það yrði sjónmengun af þessu húsi ef það risi. Hvað hefði sá ágæti maður sagt nú?
Auðvitað var ekkert að marka sjónarspilið, sem fulltrúar Á - lista settu í gang hérna um árið. Hvað finnst Álftnesingum? Er hún ekki stórbrotin rennibrautin? Og er ekki líklegt að rennibrautarturninn muni vekja athygli á sundmiðstöðinni um allt höfuðborgarsvæðið og víðar og valda straumhvörfum í mætingu sundgesta á nesið? En bæjarstjóri gerir jú ráð fyrir því í fjárhagsáætlun ársins að örtröð verði í sundmiðstöðinni, allavega þetta árið.

Guðmundur

No comments:

Post a Comment