Friday, February 6, 2009

Miðskógar 8 og lygin.

,,Ofan í friðaða fjöruna" segir bæjarstjórinn og hinir bæjarfulltrúar Á - listans í sífellu í Garðapóstinum, Fréttablaðinu og í Morgunblaðinu. Bæjarstjórinn hefur í viðtali í hádegisfréttatíma RÚV sagt frá þessari friðuðu fjöru við Miðskóga 8.
Þessi fullyrðing er því miður hrein og klár lygi.
Fjaran með Skógtjörninni og önnur fjara á Álftanesi er ekki friðuð, nema fjaran við Hlið syðst á Álftanesi. Fjaran við Skógtjörn er hins vegar á náttúrumynjaskrá, sem er einskonar viljayfirlýsing. Friðun er auðvitað allt annað og alvarlegra mál, þar sem sveitarfélag, landeigandi og Náttúruráð sameinast um samning landnýtingu tiltekins svæðis til verndunar.
Hvað þessu fólki gengur til með greinum sínum í blöð nú undanfarið vegna Miðskóga 8 er mér algerlega hulið. Svo kyrfilega bæta þau gráu ofan á svart, með þessum ólíkindatexta í greinum sínum. Svona stjórnsýsla er Álftnesingum til skammar.
Sjá nánar grein hér á blogginu dags. 30. janúar sl. = ,,Mogginn í dag, síða 22.

Guðmundur

No comments:

Post a Comment