Tuesday, February 17, 2009

Biederman og brennuvargarnir.

Ég hitti á dögunum ágætan félaga, sem hefur eins og við öll velt fyrir sér þessum ósköpum, sem dunið hafa yfir okkur. Kreppu sem ,,toppar“ allar aðrar niðursveiflur samtímans og líklega mun lengra aftur í tímann.
Hann gerði samlíkingu með því ágæta leikhúsverki ,,Biederman og brennuvargarnir“ eftir Max Fritz, en leikritið fjallar um húseigandann Biederman og leigjendur, sem fluttu timbur og annað dót í bygginguna og kveiktu síðan í öllu heila klabbinu.
Sem sagt, Biederman gamli gerði jú alls ekki ráð fyrir að leigjendurnir myndu bera eld að innvolsinu sem þeir báru inn í bygginguna, sem því miður gerðist.
Má með þessu sjá samlíkingu með því sem gerst hefur á Íslandi, þar sem umgjörðin var kyrfilega misnotuð af brennuvörgum nútímans.
Ljóst má vera að skellur kreppunnar er mun svakalegri en hefði orðið, ef fámennur hópur hefði ekki misnotað þannig aðstöðu sína, á kostnað fjöldans.
Nú hlýtur það að vera meðal annars markmið Sjálfstæðismanna á Landsfundi í lok mars nk. að setja sér a.m.k. þrjú markmið:
a) Gera upp við fortíðina.
b) Gera vel grein fyrir stöðunni í nútíð.
c) Marka skýra stefnu til framtíðar.
Staða Sjálfstæðisflokksins utan ríkisstjórnar er einstök miðað við aðstæður. Vegna þess að nú er hægt að vinna einbeitt að því marki að flokkurinn komi tvíefldur til undirbúnings kjördegi til alþingis í lok apríl.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf að leggja á borð sterk rök og skýr fyrir því að verða beittur valkostur við nýjar aðstæður.
Guðmundur

No comments:

Post a Comment