Sunday, May 9, 2010

Sveitarstjórnarkosningar

Kosið verður 29. maí nk.
Stofnaður hefur verið Listinn
- óháð framboð áhugahóps um velferð Álftnesinga.

Þessi fréttatilkynning var send fjölmiðlum í gær í tilefni af stofnun listans.
Listinn mun fá eigin heimasíðu og síða á Facebook verður sett upp.
Kveðja, Guðmundur

8. maí 2010.
Sveitarstjórnarkosningar 29. maí 2010.
Stofnaður hefur verið listi óháðra á Álftanesi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 29. maí nk. Að listanum stendur áhugahópur íbúa um velferð Álftnesinga. Framboðið er óháð stjórnmálaflokkum. Meginmarkmið er að fjárhagslegum álagsþvingunum, sem Álftnesingar þurfa að bera ofan í ógnvekjandi stöðu heimilanna almennt í landinu af völdum hrunsins, verði aflétt strax á þessu ári. Það verði ekki gert nema með sameiningu við annað bæjarfélag á höfuðborgarsvæðinu, sbr. skýrslu bæjarstjórnar Álftaness dags. 27. janúar sl. Hefja þarf vinnu við það verkefni strax að kosningum loknum. Slíkar ráðstafanir þola enga bið.
Með kveðju, f.h. Listans, Guðmundur G. Gunnarsson

Listi óháðra á Álftanesi:

1. Guðmundur G. Gunnarsson verkefnastjóri
2. Valgerður Júlíusdóttir framkvæmdastjóri
3. Erlendur Sveinsson kvikmyndagerðarnemi
4. Anna Ólöf Thorlacius grunnskólakennari
5. Pétur Daníelsson framkvæmdastjóri
6. Sigríður Halldóra Pálsdóttir kennari
7. Haukur Herbertsson véltæknifræðingur
8. Guðný Hrund Þórðardóttir leikskólakennari
9. Guðbjörn Jensson verkfræðinemi
10. Guðbjartur I. Gunnarsson skipstjóri
11. Guðlaugur Einarsson sjómaður
12. Helga Kristjana Einardóttir stuðningsfulltrúi
13. Bogi Jónsson blikksmíðameistari
14. Guðrún Jóhannsdóttir ellilífeyrisþegi

No comments:

Post a Comment