Monday, May 31, 2010

Sveitarstjórnarkosningarnar.

Það eru sterk skilaboð í úrslitum kosninganna á Álftanesi á laugardaginn var.

Ástæða er til að þakka þeim sem veittu L – listanum brautargengi.

Skilaboðin með kosningu fulltrúa Listans í bæjarstjórn eru afar skýr.

Árangur D – lista, L – lista og B – lista í kosningunum er mjög athyglisverður og skilaboð kjósenda um að á ný verði markviss vinnubrögð í bæjarstjórn Álftaness. Þar ræður öllu áhugi þessara framboða á hagsmunum og velferð Álftnesinga.

Skilaboðin eru einnig þau að reynsla flestra þeirra, sem nú hlutu kosningu í bæjarstjórn skipti öllu máli, þegar kemur að bráðaðkallandi úrlausnarefnum.

Ég hef skýrt hér á síðunni hvernig mín aðkoma að stofnun Listans bar að. Það hefur verið mér mikil ánægja að starfa með þessum stóra og góða hóp einstaklinga, sem stóð að framboð Listans. Áhuginn og eindrægnin smitaði svo sannarlega út frá sér.

L – listinn og áherslur okkar góða hóps eru komnar til að vera á Álftanesi.

Ítreka þakkir til allra sem komu að stofnun Listans og þakkir til þeirra, sem skipa Listann og framvindu frá 2. maí sl, en Listinn var stofnaður þann dag.

Bestu kveðjur, Guðmundur

No comments:

Post a Comment