Það blöskrar mörgum þessi hrikalega ásýnd – gula ferlíkið við sundlaugina - rennibrautin. Að þessi ósköp skuli vera orðið ,,kennileiti“ á Álftanesi og sést víða að. Er í raun það fyrsta, sem menn reka augun í, þegar komið er vestur yfir Presthól á leiðinni heim Álftanesveginn.
Þegar fulltrúar Á – listans hömuðust í því að eyðileggja skipulag miðsvæðisins veturinn 2005 – 2006 og þar með leggja drög að því sem nú er ætlað er að verði á því svæðinu, þá settu þau m.a. upp skilti við gatnamótin að Bessastöðum.
Á skiltinu stóð –
Skipulagsslys.
Hjá Á – liðinu voru á þeim tíma ,,göfug markmið“ um lágreist mannvirki, sátt við íbúa, íbúalýðræði, minni skuldir o.s.frv.
Vorið 2006 voru sumir Álftnesingar plataðir illilega af Á – liðinu.
Gert var ráð fyrir því við samþykkt bæjarstjórnar á sínum tíma, að samráð yrði haft um umfang og kostnað nýbyggingar við íþróttamiðstöðina. Það var nú öðru nær, engin glóra var í vinnu við undirbúning þessa mannvirkis. Þar ríkti það sjónarmið fulltrúa Á – listans = að eyða sem allra mestu. Taka sem mest að láni.
T.d. vitleysan með öldulaugina, en nú hefur loks verið upplýst að hún sé einkum ætluð félögum í kajak klúbbnum Sviða! Þegar gagnrýndur var ætlaður kostnaður við svo umfangsmikið mannvirkið þá sögðu þau Á - liðarnar: ,,Við viljum vera flott á því.“ Sem sagt 250 til 300 milljónir skiptu ekki máli í öldulaugina, enda allt tekið að láni.
Auðvitað var sama hugsunin í bruðlinu með sundlaugarbygginguna eins og í peningaspillingunni í kring um allt verkið ,,Grænan miðbæ“ bæjarstjórans.
Það voru gerðar óraunhæfar áætlanir um tekjur bæjarsjóðs, sem aldrei komu. En það sem verra var, það var eytt á bæði borð, á grundvelli tekjuáætlana sem brugðust.
Óráðið byrjaði strax í júní 2006, sem fulltrúar D – lista hafa ítrekað varað við síðan.
Sem sagt ,,verum flott á því“ eyðum og eyðum – tökum sem mest að láni. Þau þurfa ekki að hafa áhyggjur af greiðslunum af lánunum Á - liðarnir– það munu þau gera sem munu skipa næstu bæjarstjórn og aðrir Álftnesingar munu finna fyrir! Þar munu Á - liðarnir hvergi koma nærri.
Í áætlunum Á – listanna er gert ráð fyrir miklum tekjum af nýju mannvirki við sundlaugina á árinu 2009 og 2010. Gert er ráð fyrir miklum straumi fólks af suðvesturhorni landsins. Fulltrúar D – lista við undirbúning (sem ekki var hlustað á) hafa ítrekað bent á að áætlanir um magnaðar tekjurnar eru byggðar á sandi.
Vesenið er nú sennilega aðeins flóknara, það bendir allt til þess að mannvirkið sé ekki reist í samræmi við gildandi deiliskipulag frá í mars 2008. Sé það rétt, þá verður fróðlegt að sjá hvernig snillingarnir, Á – liðarnir vinna úr þeirri stöðu.
Guðmundur