Wednesday, July 29, 2009

Bæjarstjórn Álftaness, staða mála.

Svo sem ljóst af skrifum í síðasta pistli, þá ríkir upplausnarástand í bæjarstjórn Álftaness. Þrír fulltrúar Á - lista, Sigurður Magnússon, Kristín Fjóla Bergþórsdóttir og Margrét Jónsdóttir, hafna samstarfi við Kristján Sveinbjörnsson, sem skv. úrskurði ráðuneytis kemur í bæjarstjórn, eftir að hafa beðist lausnar í kjölfar óheppilegra tölvuskeytasendinga fyrr í vetur. Auk þessa hefur Margrét sagt sig frá Á - listanum með kjarnyrtri yfirlýsingu sl. mánudag. Í yfirlýsingu Margrétar kemur fram hörð gagnrýni á vinnubrögð bæjarstjóra.

Að minni tillögu samþykktu bæjarfulltrúar D - lista að boða til bæjarstjórnarfundar kl. 12 í dag. Var það gert í trausti þess að Margrét Jónsdóttir væri tilbúin að styðja þann gerning. En við þrjú fulltrúar D - lista getum ekki lögum skv. boðað fund, en það geta að sjálfsögðu fjórir af sjö fulltrúum. Ekkert verður af fundinum, þar sem Margrét hefur hafnað beiðni um viðræður um myndun nýs meirihluta bæjarstjórnar.

Nú horfir svo við að eftir allt yfirlýsingaskakið núverandi og fyrrum fulltrúa Á - lista að þau haldi enn meirihluta í bæjarstjórn. Eða að bæjarstjórn er nú í gíslingu umboðslauss bæjarstjóra.

Bæjarfulltrúarnir Sigurður, Kristín Fjóla og Sigurbjörn Úlfarsson óskuðu eftir því formlega á sunnudagskvöldið sl. að fram færu viðræður við fulltrúa D - lista um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn.

Fulltrúar D - lista héldu tvo fundi til að fara fyrir beiðnina og stöðuna. Beiðninni var hafnað á fundi, sem hófst kl. 18 í gær og var þeim boðum komið til þeirra, sem fóru fram á viðræðurnar.

Í framhaldi var haft samband við Margréti og óskað eftir því að fulltrúar D - lista og hún hæfu viðræður um myndun nýs meirihluta bæjarstjórnar.

Með símtali var hún látin vita af þessum áhuga fulltrúa D - lista og formaður Sjálfstæðisfélagsins og ég fórum heim til Margrétar á þeim tíma, sem hún vissi að við myndum mæta til hennar, til þess að bera upp beiðnina formlega. Við tveir gripum í rómt, hún var úti í löngum göngutúr!!!!! Ég sendi síðan beiðni okkar fulltrúa D - lista Margréti í tölvupósti í gærkvöldi.

Ég fékk vitneskju um það klukkan rúmlega 20 í gærkvöldi að búið væri að boða fund tveggja fulltrúa Á- lista og tveggja fyrrum fulltrúa Á - lista og þeirra stuðningsfólks.

Í skeyti snemma í morgun hafnar Margrét beiðni fulltrúa D - lista.

Nú er það svo að bæjarstjórninni er haldið í gíslingu umboðslauss bæjarstjóra, það er grafalvarlegt mál. Án hans aðkomu eða einhvers hinna fulltrúa Á - lista og fyrrum fulltrúa Á - lista er ekki hægt að boða fund bæjarstjórnar!!!!!

Þvílíkur cirkus.

Guðmundur

No comments:

Post a Comment