Friday, July 3, 2009

Heilindapróf

Það rifjast ýmislegt upp fyrir mér, þegar horft er yfir svið atburðarrásar frá júní 2006 til þessa dags varðandi stjórnsýslu Álftaness og tilburði fulltrúa Á - listans.

Það var á fundi Sambands íslenskra sveitarfélaga á Nordica hótel í Reykjavík í september 2006 að þar hitti ég að máli þáverandi félagsmálaráðherra og ráðherra sveitarstjórnarmála Árna Magnússon.

Við ræddum aðeins úrslit sveitarstjórnarkosninganna frá því þá um vorið. Ég sagði honum þá skoðun mína að allir, sem gæfu kost á sér til sveitarstjórnarkjörs ættu að gangast undir eins konar heilindapróf. Skyndipróf í hæfni og öðru slíku, sem varðar þau stóru mál, sem lögum samkvæmt þarf að leysa úr við stjórn sveitarfélags. Árna fannst hugmyndin athyglisverð og spurði hvað ég ætti við nánar.

Ég skýrði honum frá því að auðvitað lægi niðurstaða kosninganna klár hvað Álftanes varðaði, en þar væru komnir við stýrið tveir menn, Sigurður Magnússon og Kristján Sveinbjörnsson, sem ég treysti engan vegin og svo ætti við um fleiri, sömu skoðunar.

Það er erfitt að sætta sig við að fulltrúar Á – lista hafa spilað fjárhættuspil með bæjarsjóðinn, sjóð íbúanna. Hrikaleg þróun stöðu bæjarsjóðs síðan þeir félagar hófu hina einkennilegu ,,Álftanes útrás." Útrás, sem engu gat skilað, öðru en brotlendingu. Sú staðreynd blasir við að í gegn um tíðina upplifum við íslendingar miklar sveiflur í hagkerfinu, það mun tæplega breytast neitt að ráði. Því ber að stíga varlega til jarðar, þegar kemur að vali á eyðslu til ,,gæluverkefna“ í þessu einkennilega sveifluhagkerfi þjóðarinnar, einkum þegar litið er til smæðar bæjarfélagsins.

Staða bæjarsjóðs var orðin mjög alvarlega löskuð um áramótin 2007 / 2008.

Þegar fjármálakreppa skellur á síðastliðið haust, þá sér hver heilvita maður að vandinn minnkar ekki. Að skulda um síðustu áramót yfir 5 faldar áætlaðar árstekjur 2009 hlýtur að valda mönnum miklum áhyggjum.

Guðmundur

No comments:

Post a Comment