Tuesday, July 14, 2009

Kennitöluflakk með velþóknun Nýja Kaupþing banka

Á sex tíma fundi bæjarráðs sem lauk í gær, sem var framhald fundar frá fimmtudeginum 9. júlí sl. var nokkuð tekist á um það hvort gera eigi marga samninga við Ris ehf.
  • Samning um gatnagerð vegna framkvæmda fyrir Búmenn á miðsvæðinu,
  • tvo samninga um sölu byggingarréttar,
  • leigusamning við Ris um stóran hluta húss á miðsvæðinu
  • kaup bæjarfélagsins á Sveinskoti í eigu Ris ehf.
En auk þessara samninga er Ris ehf. með samning við Búmenn og Álftanes um að reisa m.a. bráðabirgðaskrifstofur með lánsloforði frá Íbúðalánasjóði, sem veitt er á grundvelli þess að byggja eigi fyrir eldri íbúa.

Þegar fundarboðið var sent út mánudaginn 6. júlí var þess hvergi getið, hvorki í fundarboði eða í fundargögnum að keyra ætti í gegn svo umfangsmikla samninga. En vegna þess að gögn vegna útboðs á gatnagerð, mál 9, voru ekki tilbúin fyrr en á fundinum, var að tillögu bæjarstjóra samþykkt að fresta fundinum til hádegis í gær. Þegar þessi tillaga um að fresta máli 9, óskaði ég eftir að taka til máls og sagði það augljóst að fresta ætti málunum hinum, sem varðaði Ris, þeim sem ég tel hér upp að framan. Við því varð orðið. Reyndar vafðist þetta atriði eitthvað fyrir fulltrúum Á - lista á framhaldi fundarins í gær og töldu að þau hefðu haft frumkvæði að því að fresta stóra pakkanum gagnvart Ris ehf. Það skiptir í raun engu máli hvað var hvort, fyrst ákveðið var að fresta fundinum. Í upphaflegri áætlun fulltrúa A - lista ætluðu þau að keyra allan þennan pakka í gegn á fundinum á fimmtudaginn, það stóð aldrei til að fresta fundinum. Það var í raun bara uppákoma í öllum flumbruganginum í aðdraganda fundarins.

Vinnubrögð og stjórnsýsla fulltrúa Á - listans er með algerum ólíkindum.

Þau hömuðust á því í mikilli vandlætingu, hvað mér gengi til með tillögum mínum og bókunum á bæjarráðsfundinum í gær. Ég væri að gagnrýna þau vegna vinnubragða við að ná inn auknum tekjum í bæjarsjóð!! og vegna samninga við fyrirtæki í góðri stöðu, sbr. fundargerð fundar bæjarráðs.

Í upphafi framhalds fundarins í gær var lagt fram lítið og mjög ,,saklaust" bréf = ,,Yfirfærsla á samningum," og varð það erindi nr. 22 á fundinum.

Í erindinu, sem samþykkt var af fulltrúum Á - lista með velþóknun, er samþykkt að Ris ehf. skipti um kennitölu varðandi verkefni fyrir Búmenn á Álftanesi. Plagg þetta er samþykkt með velþóknun Kaupþing banka hf. í eigu ríkisins. Skipt verður um kennitölu á Ris ehf. og fyrirtækið nefnt Ris Álftanesi ehf. vegna verkefna fyrir Búmenn á Álftanesi. Það er greinilega ýmislegt á sig leggjandi að mati eigenda Ris ehf.

Já hérna hér, það er ákveðið af Kaupþing banka hf. í eigu ríkissjóðs að lána í verkefnið allt að kr. 450 milljónum með því skilyrði að verktakinn skipti um kennitölu áður en verk er hafið (fyrsta skóflustunga í dag) og auk þessa taka þátt í leiknum Íbúðalánasjóður með lánsloforð um 750 milljónir til Búmanna. Allt gert með endanlegri samþykkt Búmanna á herlegheitunum.

Staða Ris ehf. virðist þannig að mati Kaupþing banka hf. að ekki er treyst á það að veita lánafyrirgreiðslunni til þeirrar kennitölu, sem fyrirtækið hefur verið rekið á um langt árabil. Íbúðalánasjóður virðist ætla að dingla með í kennitöluleik Búmanna og Ris ehf.

Til þess að átta sig betur á samhenginu er gott að skoða fundargerð bæjarráðs frá 108 fundi dags. 9. júlí 2009. Fundargerðin er á heimasíðunni alftanes.is

Það var einhver drungi yfir öllu þessu máli og einkennilegheit á fundi bæjarráðs á fimmtudaginn og mánudaginn, en ég gerði mér ekki grein fyrir því að subbuskapnum er engin takmörk sett, eða hvað?

Guðmundur

No comments:

Post a Comment