Þau tíðindi hafa gerst að meirihluti Á - lista í bæjarstjórn Álftaness er fallinn. Þau fjögur, sem tilheyrt hafa meirihlutanum eru nú í þremur hlutum:
a) Sigurður bæjarstjóri og Kristín Fjóla
b) Margrét Jónsdóttir
c) Kristján Sveinbjörnsson
Sigurður, Kristín Fjóla og Margrét hafna samvinnu við Kristján eftir að Samgönguráðuneytið úrskurðaði á fimmtudaginn var að hann ætti rétt á endurkomu í bæjarstjórn.
Sigurður og Kristín Fjóla hafa óskað eftir því við fulltrúa D - lista að viðræður hefjist um myndun nýs meirhluta bæjarstjórnar.
Aðal- og varabæjarfulltrúar D - lista ásamt stjórn Sjálfstæðisfélagsins héldu fund í gærkvöldi, þar sem þessi staða og beiðni Sigurðar og Kristínar Fjólu var rædd, án þess að niðurstaða fengist.
Guðmundur
Tuesday, July 28, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment