Ég er hjartanlega sammála Guðmundi.
Það átti að bíða með prófkjörið þar til frambjóðendur, ekki síst þeir sem komu nú nýir til leiks gerðu sér fulla grein fyrir hver staðan í raun er og hvað framundan er í málefnum sveitarfélagsins.
Guðmundi Gunnarssyni þakka ég heilshugar fyrir vel unnin störf í þágu okkar Álftnesinga og ekki síst fyrir alla sína hugsunarsemi og hlýju í garð okkar eldri borgara á Álftanesi. Ég mun svo sannarlega sakna hans úr bæjarstjórnarmálum okkar Álftnesinga. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.
Sú gagnrýni sem Guðmundur hefur nánast einn þurft að standa fyrir á það hrikalega bruðl með fjármuni bæjarsjóð okkar Álftnesinga allra var ekki hans einkamál, heldur er nú að bitna á okkur öllum. Mér er gjörsamlega óskiljanlegt að enginn nema Guðmundur skuli hafa verið nógu glöggur til að átta sig á hvað var að gerast hér og hvernig þetta hlyti óhjákvæmilega að enda. Og enn síður get ég skilið að samherjar hans í stjórnmálum, félagar í Sjálfstæðisfélagi Álftaness skuli ekki hafa fylkt sér að baki hans í stað þess að væna hann um ófrið og persónulegar árásir á þá sem bruðluðu.
En það mun fyrr en varið renna upp ljós fyrir öllum Álftnesingum og líka þeim sem nú eru komnir nýir í efstu sætin og þykjast geta reddað öllu !
Það skal þó sérstaklega tekið fram að Kristinn Guðlaugsson þekki ég að góðu einu og veit fyrir víst að hann mun gera sitt besta.
Guðrún Jóhannsdóttir, formaður Félags eldri borgara Álftanesi.
Sunday, February 7, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment