Í dag hefur eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga tilkynnt ráðherra sveitarstjórnarmála um tillögu sína varðandi lausn á fjárhagsvanda Álftaness.
Tillagan til ráðherra er að skipuð verði fjárhaldsstjórn með vísan í 76. grein sveitarstjórnarlaga. Fjárhaldsstjórn leiti allra tiltækra leiða til lausnar vandanum. Auk þess er gerð tillaga um að gerður verði samningur um samskipti og verkaskiptingu fjárhaldsstjórnar og sveitarstjórnar um fjárhaldslegar aðgerðir á skipunartíma fjárhaldsstjórnarinnar.
Það að gerð er tillaga um samning um samskipti og verkaskiptingu fjárhaldsstjórnar og sveitarstjórnar er verulega stórt og mikilvægt skref fyrir okkur Álftnesinga. Slíkt ráðslag er viðurkenning á starfi núverandi meirihluta og skýrslu um fjárhaldsaðgerðir, sem samin var og samþykkt í bæjarstjórn 26. febrúar sl.
Eftirlitsnefndin bendir ráðherra á í þessu sambandi að starfsmenn sveitarfélagsins og sveitarstjórn hafi unnið gott verk við greiningu vandans og áætlanagerð, sem ætti að nýtast í framhaldsvinnunni.
Ráðherra þarf nú að taka afstöðu til tillögu eftirlitsnefndarinnar. Gangi þetta eftir, þá er ljóst að farvegur verkefnisins er inn rammaður.
Ég lít svo á að meiri líkur en minni séu á að ráðherra taki af skarið og skipi fjárhaldsstjórn.
Verði þetta niðurstaðan, þá verðum við að líta á það sem tækifæri til jákvæðrar fram þróunar. Þar með yrði ljóst að ríkið tekur af skarið og hyggst koma að málum með ábyrgum hætti og því ber að fagna. Í skýrslu bæjarstjórnar, sem lögð er til grundvallar er tæpt á mörgum atriðum, sem nýta má við úrlausn vandans.
Megin mál er að nú verði snör handtök og allri óvissu eytt á allra næstu mánuðum um hvernig mál verða leyst og hvert Álftnesingar munu stefna.
Viss kaflaskil verða með ákvörðun ráðherra, vonandi getum við horft brött fram á veginn. Þar ræður velferð og hagsmunir Álftnesinga för, þegar bæjarfulltrúar takast á við lokastefnu þessa viðamikla verkefnis.
Guðmundur
Thursday, February 4, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment