Nú liggur fyrir niðurstaða prófkjörsins frá í gær.
Stjórn Sjálfstæðisfélagsins var mikið í mun að flýta prófkjörinu, sem allra mest og varð ekki við óskum um að fyrir lægi hvert stefndi varðandi fjármál bæjarfélagsins.
Sl. fimmtudaginn fékk samgönguráðherra tillögu eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga varðandi Álftanes. Ráðherrann á eftir að taka afstöðu til tillögunnar, sem varðar að Álftanesi verði sett fjárhaldsstjórn.
Stóra málið varðandi tillögu eftirlitsnefndarinnar er að auk þess að hér verði sett fjárhaldsstjórn, þá er mælt með að gerður verði samningur við bæjarstjórnina um framvindu og verkaskiptingu í vinnu framundan. Það að þessi samningur verði gerður er mikil viðurkenning á því verki, sem meirihluti bæjarstjórnar hefur unnið og skýrslu bæjarstjórnar um fjárhaldsaðgerðir.
Ég hefði kosið að þessar ráðstafanir væru öllum ljósar og hvað fylgdi í kjölfarið, þannig að íbúar og ekki síst þeir sem gáfu kost á sér í framboð í prófkjöri D - lista, hefðu skoðun á framhaldinu.
Ég hef lagt mig allan fram í störfum mínum í hreppsnefnd/bæjarstjórn fyrir Álftnesinga og yfirgef þann vettvang ánægður í hjarta, þegar kjörtímabilinu lýkur í vor.
Mig svíður auðvitað framkoman sem við gátum ekki komið okkur saman um að mótmæla kröftuglega sem einn maður, meðferðinni á almannafé þetta kjörtímabilið. Staða bæjarsjóðs er ömurlegt vitni um tilburði á grundvelli hugarburðar eins manns, sem virtist spila sóló með bæjarsjóðinn og komst upp með það.
Ég þakka öllu því góða fólki sem ég hef unnið með í sveitarstjórninni og auðvitað öllum þeim, sem hafa stutt mig.
Margrét Jónsdóttir bæjarfulltrúi sýndi mikinn kjark og styrk, þegar henni ofbauð staðan síðastliðið sumar og hafði frumkvæði að myndun nýs meirihluta bæjarstjórnar. Við fulltrúar D - lista og Margrét höfum unnið þétt saman og af miklum heilindum, sem einn maður. Við munum vinna saman til loka kjörtímabilsins, af sama krafti og eldmóði.
Árangur af vinnu okkar við vægast sagt mjög erfiðar aðstæður, er mikill og mun vonandi skila okkur á rétta braut á næstu vikum. Þar gildir að hagsmunir Álftnesinga eru í forgrunni og megin markmið að auka álögur á íbúa vari í sem skemmstan tíma.
Sérstakar þakkir færi ég Siggu Rósu og Kristni. Vinnuálagið á okkur bæjarfulltrúum í meirihluta bæjarstjórnar hefur verið með ólíkindum frá því í júlí sl. og einkum tímabilið frá október til þessa dags.
Ég þakka sérstaklega fyrir stuðninginn í prófkjörinu í gær.
Ég óska þeim velfarnaðar sem taka nú við forystunni fyrir D - listann.
Mér hugnast þó ekki lýðskrumið og moðsuðan, sem Álftnesingum var boðið upp á í aðdaganda prófkjörsins og vona auðvitað að slíkir tilburðir ráði ekki för það stutta tímabil, sem kosið verður til í maí í vor. Því miður heyrir Sveitarfélagið Álftanes brátt sögunni til.
Ég er stoltur af störfum mínum fyrir Álftnesinga.
Guðmundur
Sunday, February 7, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment