Í orrahríð undanfarinna daga og ótrúlegri stöðu í bæjarmálunum, hafa dunið á okkur bæjarfulltrúum á Álftanesi og þeim sem með okkur standa, símtöl, samtöl, tölvupóstar, bréf, sem sagt alls herjar hvatning.
Vissulega er þessi hvatning með ýmsum hætti, eftir því sem við á í hverju tilviki.
Svo sem ég lýsi í pistlinum hér næst á undan, þá er nú atburðarrásin og framvindan með miklum ólíkindum.
Ég hef þá skoðun, eftir að hafa tekið saman í kollinum all einkennilega atburðarrásina frá því síðastliðinn föstudag, að bæjarstjórinn hafi ætlað sér, allt frá því í október sl. að ,,ná fulltrúum D - lista" - tveimur eða þremur inn í meirihlutann. Óháð því hvaða afleiðingar það hefði fyrir framboð Á - listans. Til samábyrgðar á hraklegri stöðu bæjarsjóðs.
Ég reikna alls ekki með að bæjarstjórinn hafi reiknað með að fulltrúar D - lista myndu svara neitandi beiðni hans og Kristínar Fjólu Bergþórsdóttur einu fulltrúa Á - lista í dag í bæjarstjórn um viðræður um myndun nýs meirihluta bæjarstjórnar.
Sú staða að bæjarstjórn er í fjórum hlutum (3+ 2+ 1 + 1), er bísna sérkennilegt og staðan er enn flóknari, þar sem fimm af sjö bæjarfulltrúum vilja að bæjarstjóri víki. Ekki er hægt að halda aukafund í bæjarstjórn, það þarf fjóra til. Bæjarstjórnin er því í gíslingu bæjarstjóra.
Aftur til upphafs þessa pistils, þá í samtali nú áðan, sagði mér ágætur maður farir sínar ekki sléttar í samskiptum við bæjarstjórann hér á árum áður.
Eftir að þessi ágæti maður hafði gefið mér greinargóða lýsingu á sínum samskiptum og nokkurra annarra við Sigurð Magnússon bæjarstjóra á Álftanesi, frá fyrri tíð, þá spurði ég ,,en af hverju segir þú og þessir menn sem hafa haft samskipti við manninn, ekki frá á opinberum vettvangi?" ,,Af hverju að láta þennan mann valda meira tjóni en orðið er?"
Svarið var einfalt:
,,Við nenntum ekki að ólmast í manninum, ég og mínir félagar tókum á sínum tíma það sem Siggi kallaði ,,málverk" metið af honum á 3,5 milljónir upp í tugmilljóna misferli og létum það nægja. Við hefðum hvers sem ekki ekki náð neinum árangri með kostnaðarsömum innheimtuaðgerðum á manninn."
Ég svaraði ,,Já hérna hér og við Álftnesingar fáum að blæða vegna frammistöðu mannsins."
Það sem mér finnst svo kostulegt er að þeir sem áttu viðskipti við Sigurð Magnússon bæjarstjóra frá fyrri tíð, skuli ekki hafa komið á framfæri skoðunum sínum a.m.k. við Álftnesinga, til að vara okkur við ósköpunum.
Er ekki full ástæða til þess nú við vægast sagt erfiðar aðstæður á Álftanesi, þar sem bæjarstjórinn heldur bæjarstjórninni í gíslingu í skjóli lélegra laga sem gera ekki ráð fyrir vitleysunni sem fær að viðgangast hér, að þessir ágætu menn sem höfðu samskipti við Sigurð á sínum tíma með döprum árangri og miklum fjárhagslegum hremmingum gefi sig fram og segi Álftnesingum frá?
Hvað segja þeir sem komu á einn eða annan hátt að málum varðandi fyrirtæki, sem Sigurður var framkvæmdastjóri fyrir og í sumum tilfellum meðeigandi eða aðaleigandi að. Hvað segir þessi upptalning:
Rafver
Ísvör
Gullfoss bílaleiga
Margfeldi
Framferði bæjarstjórans í skjóli ,,sinna" fulltrúa Á - listans og áður Á - listans stendur okkur Álftnesingum alveg ljóslifandi fyrir augum. Er ekki mál að linni?
Er ekki kominn tími til þess að við hreinsum andrúmsloftið í ljósi aðstæðna, með heill og framtíð Álftnesinga og bæjarfélagsins að leiðarljósi?
Guðmundur
Thursday, July 30, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Rafver Ísvör Gullfoss bílaleiga Margfeldi Bessastaðahreppur . Hvaða tök hefur hann (SOKKURINN) Á Öllum í kringum sig . Svar óskast? Og Margrét Láttu ná í þig Og það strax Fólk fer að fara úr Hreppnum ef þetta heldur áfram . Sigurður Pakkaðu og farðu Við þurfum ekki á svona NÓTA að halda,,,,,,,,
ReplyDelete