Thursday, February 4, 2010

Þingmaður fer með fleipur

Í fréttum sjónvarps RÚV kl. 22 í gærkvöldi var viðtal við þingmanninn Magnús Orra Schram.

Þar var fjallað um fjárhagsstöðu Álftaness og viðskilnað Á - lista á bæjarsjóðnum, sem nú er til skoðunar hjá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga í Samgönguráðuneytinu.

Fréttamaður gerði þar nokkra grein fyrir stöðunni á Álftanesi, að hún væri slæm og að vont væri ef fólksflótti brysti á frá Álftanesi. Haft var viðtal við þingmanninn í fréttunum. En hann er í samgöngunefnd alþingis, sem fundaði í gærmorgun um fjárhagsvandræði Álftaness.

Fréttamaðurinn sagði að miklar deilur hefðu verið á Álftanesi og spurði m.a. þingmanninn "hvort til greina kæmi að skipa nýja sveitarstjórn." Svar þingmannsins var "já, það kemur til greina." Og síðan skýrði hann málið þannig að skipun fjárhaldsstjórn væri inni í myndinni, sem er úrræði skv. lögum. En lög gera reyndar ekki ráð fyrir að sveitarstjórnin víki þar með!

Hann hefur vissulega ekki lagst í miklar rannsóknir þingmaðurinn áður en hann fékk hvöt til að tjá sig, þrátt fyrir skýringar í samgöngunefnd í gær morgun og að allar upplýsingar lægju á hans borði og svo er nú ekki flókin lesning lögin um viðbrögð við þessar aðstæður.

Til að skýra aðeins tilurð þessa fundar í samgöngunefnd alþingis í gærmorgun, þá átti Sigurður Magnússon fyrrum bæjarstjóri á Álftanesi frumkvæði að honum og fékk hann Björn (Vinstri grænum) formann nefndarinnar til þess að boða fundinn. En vissulega var tilgangur Sigurðar að halda fram sínu sjónarmiði um að á Álftanesi væru vissulega engin vandamál.

Ekki var meining Sigurðar að Kristján Sveinbjörnsson bæjarfulltrúi mætti á fund nefndarinnar með honum, en það gerðist einmitt og það kom Sigurði í opna skjöldu. Þeir fyrrum félagar eru ekki aldeilis sammála um framsetningu Sigurðar á vandanum þessa dagana.

Auk þeirra fyrrum félaga mættu fulltrúa bæjarstjórnar Álftaness og eftirlitsnefndin á fundinn. Ekki þó saman, heldur sitt í hvoru lagi.

Guðmundur

2 comments:

  1. Góðan dag,
    Það er rétt að leiðrétta misskilning sem varð í ofangreindum fréttaflutningi. Undirritaður sagði það skýrt í viðtali við fréttamann að fjárhaldsstjórn myndi líklega þurfa að koma að málum sveitarfélagsins. Við klippingu og úrvinnslu fréttarinnar mátti skilja að ég væri að vísa til þess að hún kæmi í stað sveitarstjórnar eða að sveitarstjórnin yrði lögð af.
    Það er alls ekki rétt, og rangt með farið af hálfu fréttamannsins.
    Það er mín von að fjárhaldsstjórn og sveitarstjórn vinna vonandi saman að úrlausn vandamálanna.
    Vonandi leiðréttist þessi misskilningur hér með.
    með kveðju,
    Magnús Orri Schram

    ReplyDelete
  2. RUV leiðrétti svo fréttina í hádeginu, sjá hér:
    http://dagskra.ruv.is/ras1/4486879/2010/02/04/12/

    ReplyDelete